Áfanginn er svipaður að uppbyggingu og undanfarinn. Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með skáldsögur, smásögur, barnabækur, tímaritsgreinar og efni á netinu, s.s. tónlist, þætti og kvikmyndir. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og góða mætingu. Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur kynna verkefni sín í viðtölum við kennara og vinna skriflegar greinargerðir sem mynda safnmöppu sem skilað er í lok annar. Hægt er að velja áfangann sem 3 eða 5 einingar.
ÞÝSK2YN03/05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, barnabókum, tímaritsgreinum og efni á netinu
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
kynna undirbúin efni, taka þátt í samræðum um þau og setja fram eigin skoðun
vinna með texta, t.d. skrifa samantektir, draga ályktanir, tjá eigin skoðanir og vinna skapandi verkefni
nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
fjalla um og halda uppi samræðum um efni sem hann hefur kynnt sér
vinna sjálfstætt og skipulega
tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu