Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1676294063.7

    Yndislestur fyrir lengra komna
    ÞÝSK3YF05
    2
    þýska
    Yndislegur framhald
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er á 3. þrepi og er hugsaður fyrir nemendur sem búa yfir afbragðsgóðri færni í þýsku. Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með skáldsögur, smásögur, barnabækur, tímaritsgreinar og efni á netinu, s.s. tónlist, þætti og kvikmyndir. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og góða mætingu. Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur kynna verkefni sín í viðtölum við kennara og vinna skriflegar greinargerðir sem mynda safnmöppu sem skilað er í lok annar. Hægt er að velja áfangann sem 3 eða 5 einingar.
    ÞÝSK2YF03/05 eða staðgóð þýskuþekking, t.d. vegna búsetu í þýskumælandi landi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, barnabókum, tímaritsgreinum og efni á netinu
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
    • kynna undirbúin efni ýmist fyrir kennara eða hóp, taka þátt í samræðum um efnið og setja fram eigin skoðun
    • vinna með texta, t.d. skrifa samantektir, draga ályktanir, tjá eigin skoðanir og vinna skapandi verkefni
    • nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
    • velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
    • geta tjáð sig óundirbúið um efni á tungumálinu og lýst skoðun sinni og annarra
    • hafa innsýn inn í aðstæður og það sem efst er á baugi í þýskumælandi samfélögum
    • vinna sjálfstætt og skipulega
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu