Í þessum áfanga gefst nemendum kostur á að lesa og ræða fjölbreytt bókmenntaverk sem skrifuð hafa verið á ensku. Nemendur velja fjórar bækur af lista í samráði við kennara og gera grein fyrir þeim munnlega í einkaviðtölum. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
ENSK2UK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
enskum orðaforða sem tengist bókmenntaumfjöllun
mismunandi stíltegundum bókmenntaverka
stílbrögðum höfunda
persónusköpun, uppbyggingu og framvindu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa enskar bækur til skilnings og ánægju
nota orðaforða bókmennta til að fjalla um skáldsögur á ensku
segja frá á skipulagðan og skýran hátt
fjalla um, bera saman og greina skáldsögur og persónur
greina þemu og stílbrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
dýpka lesskilning sinn á ensku
geta lesið á milli á milli lína og túlkað texta
mynda sér skoðanir út frá lestri og geta rökstutt þær
auka skilning sinn á mannlegri hegðun og samfélögum