Mengi, ójöfnur, algildi, veldi, veldareglur, brotnir veldisvísar og rætur, algebrustæður, brot og margliður, jöfnur og formúlur þar á meðal jafna beinnar línu. Skilgreining á falli, samskeytt föll, andhverf föll og ummyndanir.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum mengjareikningi og Vennmyndum
lotutugabrotum, náttúrlegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi
jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum
veldum, rótum og veldareglum
margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra
beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa
fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
ummyndunum (hliðrunum, speglunum og stríkkunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
meðhöndla tölur og talnamengi
leysa jöfnur og ójöfnur
beita veldareglum og meðhöndla rætur og brotna veldisvísa
meðhöndla föll og gröf
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.