Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu á tilteknu námssviði/sérgrein nemandans og þarf viðfangsefnið að vera á 3. þrepi. Nemendur fá kennslu í heimildaritgerðarsmíð og þjálfun í þeim fræðilegu vinnubrögðum sem tíðkast við vinnslu og frágang slíkrar ritgerðar. Krafist er vitsmunalegrar og verklegrar leikni til að vinna úr heimildum. Ætlast er til að nemendur öðlist hæfni til að nýta fyrri þekkingu og skilning við úrvinnslu efnisins. Nemendur vinna undir verkstjórn kennara á sjálfstæðan hátt sem krefst frumkvæðis, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi.
Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 130 einingum af námi sínu til stúdentsprófs.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ritgerðasmíð og heimildavinnu
helstu hugtökum sem tengjast gerð heimildaritgerðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota fræðileg vinnubrögð við heimildaritgerðarsmíð
beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu efnis
beita skipulegum aðferðum við úrvinnslu efnis
koma efni á framfæri á vel uppbyggðan, skýran og greinargóðan hátt
lesa fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota ýmsar aðferðir við að leysa viðfangsefni
skipuleggja vinnutíma sinn og forgangsraða viðfangsefnum
nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra viðfangsefna