Áfanginn fjallar um þroskaferil manneskjunnar allt frá fæðingu til grafar. Sérstaklega er tekinn fyrir þroski tilfinninga, félagslegra samskipta, hugsunar og greindar. Áhersla er lögð á þroska sjálfsmyndarinnar og hvernig hún mótast með aldrinum. Einnig verður vikið að þroskahömlum og þær skoðaðar út frá líffræðilegu og sálfræðilegu sjónarhorni. Nemendur æfa sig í að skoða eigin þroska út frá mismunandi þroskakenningum og greina þá þætti sem hafa mótað þá í lífinu. Nemendur fá æfingu í að rökræða álitamál eins og barneignir táninga, fóstureyðingar eða starfslok. Mótunaráhrif fjölskyldu og vina verða skoðuð og komið inn á vandamál barna og unglinga (t.d. geðræn, tilfinningaleg, líkamleg, náms- eða hegðunarvandamál). Viðfangsefnin geta verið breytileg og mótast af áhuga nemenda.
SÁLF2IS05 eða sambærilegur áfangi í félagsvísindum á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þroska mannsins út frá sálfræðinni
helstu hugtökum og kenningum þroskasálfræðinnar
framlagi þroskasálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
miðla sérhæfðri færni með því að beita almennum og sértækum vinnubrögðum, verkfærum og aðferðum
afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
taka þátt í rökræðum um málefni sem tengjast þroskasálfræðinni