Áfanginn fjallar um geðheilsu og geðræn vandamál. Fjallað er um almennt geðheilbrigði og geðrækt bæði út frá sálfræðilegum kenningum og læknisfræðilega líkaninu. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkamlegra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Einnig er fjallað um ýmsar geðraskanir og helstu meðferðarúrræði við þeim. Nemendur afla sér upplýsinga um geðheilsugæslu og þá meðferð sem er í boði á Íslandi. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á geðheilsu, geðrækt og eðli geðraskana svo þeir skilji hvernig þeir geta tekið ábyrgð á eigin geðheilbrigði.
SÁLF2IS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
geðheilsu og geðröskunum
mismunandi nálgun sálfræðinnar á geðheilsu í samanburði við líffræði
helstu hugtökum og kenningum geðsálfræðinnar
framlagi geðsálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast sálfræðinni