Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda. Nemendur lesa Íslendingasögu og fjallað er um bókmenntir og bókmenntastefnur fyrri alda frá 1550-1920. Haldið er áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.
ÍSLE2MN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmis konar ritun og heimildavinnu
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
uppbyggingu ljóða, myndmáli og stílbrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita mismunandi texta þar sem beitt er gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og efninu komið á framfæri á skýran og greinargóðan hátt í blæbrigðaríku máli
ganga frá hvers kyns texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr heimildum
lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum
átta sig á helstu bókmenntastefnum fyrri alda
lesa ljóð og greina þau
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Lokapróf, ritunarverkefni, leskannanir og vinnueinkunn