Grunnáfangi í líffræði fyrir hug- og félagsvísindabraut
LÍFF2GF04
45
líffræði
grunnáfangi í líffræði fyrir hug- og félagsvísindabraut
Samþykkt af skóla
2
4
Í þessum grunnáfanga fyrir hug- og félagsvísindadeild er gerð grein fyrir hlutverki líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar fræðigreinar. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar. Helstu efnisþættir eru: líffræði sem fræðigrein og undirflokkar hennar, helstu sameiginleg einkenni lífvera, efni og helstu efnaferlar í lífverum, bygging og starfsemi fruma, æxlun lífvera, grundvallaratriði erfða og helstu kenningar um þróun. Farið er yfir grundvallaratriði í lífeðlisfræði manna, með það í huga að nemendur geti tekið ábyrgð á eigin heilsu. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu og því sem menn eiga sameiginlegt með öðrum lífverum. Því er reynt að tengja líffræðina daglegu lífi og áhugasviði ungs fólks. Einnig eru verkefni tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á líffræði í daglegu lífi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar
grundvallarhugtökum líffræðinnar
helstu einkennum lífvera
helstu flokkum efna í lífverum
byggingu og starfsemi mannslíkamans
æxlun lífvera
helstu kenningum um erfðir og þróun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða lífverur í náttúrunni og í smásjá
tengja eigin líkamsstarfssemi við þekkingu í lífeðlisfræði
átta sig á einföldum erfðamynstrum
lesa líffræðilegan texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta