Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1681221275.63

    Lífeðlisfræði
    LÍFF3LE05
    43
    líffræði
    lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum kjarnaáfanga í lífeðlisfræði fyrir náttúruvísindadeild er gerð grein fyrir inntaki lífeðlisfræðinnar og farið í helstu þætti í líkamsstarfsemi manna.. Helstu efnisþættir eru: innri starfsemi fruma, boðflutningur; efnaboð og taugaboð, blóðrás og önnur flutningskerfi, varnarkerfi, úrgangslosunarkerfi, næringarnám og melting, stoðkerfi og hreyfing, skynjun og æxlun og þroski. Reynt verður að auka skilning nemenda á þeirra eigin líkamsstarfsemi og auðvelda þeim að taka ábyrgð á eigin lífsháttum m.t.t. þess að viðhalda heilbrigði sínu. Kynnt er mikilvægi þekkingar á lífeðlisfræði í daglegu lífi. Nemendur verði búnir undir frekara nám í lífeðlisfræði og skyldum greinum.
    LÍFF2GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • frumulífeðlisfræði, frumuöndun
    • meltingarkerfi og orkubúskap líkamans
    • loftskiptakerfi
    • blóðrás og hlutverkum blóðs
    • ónæmiskerfi
    • mismunandi hlutverkum boðefna
    • eðli taugaboða og starfsemi taugakerfis
    • útgangslosun og efnastjórn
    • æxlun og fósturþroska
    • stoðkerfum og eðli hreyfingar
    • skynjun manna og dýra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa lífeðlisfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
    • skoða vefi og líffæri
    • lesa í samspil mismunandi líffærakerfa við stjórn líkamsstarfseminnar
    • meta áhrif lífshátta á heilbrigða þroskun og starfsemi líkamans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning á lífeðlisfræðilegum viðfangsefnum
    • leggja gróft mat á lífeðlisfræðilegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
    • tengja undirstöðuþekkingu í lífeðlisfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
    • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlisfræðilegra þátta
    • afla sér frekari þekkingar á sviði lífeðlisfræðinnar