Í áfanganum er lögð áhersla á heildræna heilsueflingu. Farið er yfir gildi hreyfingar og mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að tengja saman andlega og líkamlega vellíðan. Þá er leitast við að auka meðvitund um hvað sé góð næring og skilja mikilvægi viðhalda heilbrigði eða hvað gæti verið skaðlegt. Farið er yfir fjölbreytta möguleika til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Verkefnavinna byggist á heilsueflandi þjálfun og hreyfingu. Lögð er rík áhersla á einstaklingshæfða þjálfun og hreyfingu utan skóla. Nemendur setja sér raunhæf markmið í líkams- og heilsurækt og vinna sjálfstætt utan skólans að eigin markmiðum sem tengjast hreyfingu. Í öllum áföngum er minnt á mikilvægi svefns og slökunar. Allt námið er í fjarnámi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• áhrif heilsueflandi þjálfunar og hreyfingar á líkamann
forvarnargildi almennrar heilsuræktar gegn lífsstílssjúkdómum
mikilvægi allra þátta sem snúa að heildrænni heilsu
hvað felst í hófsemi þegar kemur að heilsueflandi lífsstíl
mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja einstaklingshæfð markmið sem tengjast eigin heilsu og vellíðan
tileinka sér virkan lífsstíl á viðráðanlegan máta
æfa slökun, liðleika og teygjur
æfa hreyfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
stunda fjölbreytta líkams- og heilsurækt
huga að öllum þáttum sem snúa að heildrænni heilsu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér þjálfun og hreyfingu til að takast á við persónulegar áskoranir
nýta tækifæri til þjálfunar og nota til þess fjölbreyttar aðferðir
takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar