Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1687435754.75

    Ályktunartölfræði,
    STÆR3TF05
    141
    stærðfræði
    ályktunartölfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Líkindareikningur: Líkindi og helstu líkindadreifingar og útreikningar tengdir þeim. Tölfræði: Ályktunartölfræði, grunnatriði úrtaksfræði. Kenndar eru nokkrar helstu úrvinnsluaðferðir innan ályktunartölfræði. Megin markgildissetning tölfræðinnar. Tilgátur og prófanir.
    STÆR2TÖ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu líkindadreifingum
    • ályktunartölfræði
    • öryggisbil
    • framsetningu tilgáta og prófana á þeim
    • öflun tölfræðilegra upplýsinga
    • þekkja fervikagreiningu (ANOVA), aðhvarfsgreiningu og áreiðanleikapróf með tölfræðiforritum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta einfalda líkindadreifingu sem líkan við útreikning líkinda
    • fara með hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
    • setja fram tilgátu og gera á henni viðeigandi tölfræðilegt próf
    • reikna fylgni milli tveggja breytna
    • nýta tölfræðileg forrit við gagnavinnslu, prófanir og ályktanir
    • geta reiknað fervikagreiningu í aðhvarfsgreiningu og áreiðanleikapróf með tölfræðiforritum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    • fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og færni sem hann býr yfir
    • vera fær um að túlka niðurstöður þessara prófa og dregið viðeigandi ályktanir