Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1698310884.76

    Bókmenntir og leikrit
    ENSK3LB05
    40
    enska
    bókmenntir, leik
    í vinnslu
    3
    5
    Áfanginn er fyrir nemendur sem hafa áhuga á klassíkum bókmenntum. Valin bókmenntaverk eru lesin. Nemendur fá þjálfun í að lesa, skilja, læra, flytja og semja texta.
    ENSK3HR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • bókmenntum í hinum enskumælandi heimi, leikhefðum, höfundum og skáldum.
    • menningu í enskumælandi löndum.
    • stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem enska er töluð.
    • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér lesefni í áframhaldandi námi og starfi tengdu leiklist og bókmenntum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja vel texta á sviði leiklistar, s.s. lesefni, leiksýningar og leiklestur.
    • lesa sér til ánægju eða upplýsingar texta sem gera miklar kröfur til lesandans, hvað varðar orðaforða og uppbyggingu, myndmál og stílbrögð.
    • tjá sig af öryggi um málefni sem lúta að umfjöllun um bókmenntaverk, flutning þeirra og tjáningarmáta.
    • læra texta og flytja fyrir áhorfendur.
    • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem á við hverju sinni.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta með gagnrýnum hætti texta, listrænt gildi hans, túlkunarmöguleika o.fl.
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um bókmenntir og leiklist
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi viðhorfum og tilgangi þess sem talar.
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt og/eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum.
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð.
    • nýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt.
    • beita málinu svo hann geti tekið þátt í umræðum og rökræðum.
    • tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita myndmáli og stílbrögðum.