Jafnrétti, samskipti og samfélag út frá sjónarhorni félagsvísinda
FÉLV1SJ06
10
félagsvísindi
sjónarhorn félagsvísinda
Samþykkt af skóla
1
6
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á ólíkum samfélagshópum svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái fræðslu um jafnrétti á víðum grundvelli. Meðal efnisþátta eru kynþáttamisrétti, kynheilbrigði, kynbundið ofbeldi, hinseginleikinn og áhrif lagskiptingar á lífsgæði. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hugsun og athöfnum einstaklingsins og keppt er að því að nemendur öðlist skilning á skipulagi eigin samfélags og tengingu þess við alþjóða samfélagið. Meginmarkmið áfangans er að nemendur átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á þá og hvernig þeir geta haft áhrif á samfélagið.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengustu hugtökum félagsvísinda
helstu áhrifavöldum í félagsmótun s.s. fjölskyldu, skóla, félaga og fjölmiðla
mikilvægustu félagslegu festum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
birtingarmyndir lagskiptingar með sérstakri áherslu á íslenskt samfélag
hvernig fordómar hafa áhrif á ólíka hópa samfélagsins
helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar s.s. valdi, lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
íslenskum vinnumarkaði s.s. atvinnuþátttöku, launajafnrétti og hagsmunasamtökum
samstarfi þjóða á alþjóðavettvangi s.s. innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og á sviði alþjóðlegra viðskipta
hvaða þættir stuðla að kynheilbrigði
birtingarmyndum hinseginleikans
kynbundnu ofbeldi og hvernig það birtist í nánum samböndum
réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt
lesa og skilja áhrif félagslegra festa í samfélaginu
greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingar geta haft í samfélaginu
gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélaga
setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma
tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál
geta lagt mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra
Vita hvenær og hvert má leita eftir aðstoð vegna kynbundins ofbeldi