Í þessum áfanga verður fjallað um hvernig ýmis félagsfræðileg fyrirbæri birtast í kvikmyndum. Rýnt verður í mannlega fjölbreytni, staðalímyndir, fordóma og hagsmunahreyfingar.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
staðalímyndum og fordómum
hagsmunabaráttu ýmissa hópa
veruleika fólks í ólíkum samfélögum
afstæðishyggju og þjóðhverfum hugsunarhætti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
túlka kvikmyndir út frá tilteknu þema
setja fram túlkun sína á kvikmynd bæði munnlega og skriflega
geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum um efni kvikmynda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta fjallað á gagnýrnin hátt um staðalímyndir, fordóma og aðra mismunun
meta gildi og áhrif kvikmynda við að móta samtímaviðhorf
heimfæra boðskap kvikmynda á líf sitt og miðla til annarra