Viðfangsefni áfangans eru glæpasögur skrifaðar á ensku. Fjallað verður um uppruna glæpasöguritunar og hvernig hún greinist í mismunandi undirflokka. Við lestur glæpasagna áfangans eru höfundarnir skoðaðir sem og saga þeirra og bakgrunnur. Þjóðfélagslegur bakgrunnur og samtími sagnanna sem eru til umfjöllunar eru einnig skoðaðir.
Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
ENSK2UK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bókmenntategundinni glæpasögur
sögu og þróun glæpasagnaritunar
mismunandi undirflokkum glæpasagna
tengslum gæpasagna við sinn samtíma
mismunandi höfundum glæpasagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og skilja glæpasögur eftir ólíka höfunda
fjalla um og greina glæpasögur í umræðum og kynningum
greina og fjalla um kvikmynda- og sjónvarpsefni út frá glæpasögum
skrifa formlega og óformlega texta á ensku um viðfangsefnin
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við efni áfangans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
dýpka lesskilning sinn á ensku
mynda sér skoðanir og geta rökstutt þær í umræðum, kynningum og verkefnum
hafa yfirsýn yfir bókmenntategundina glæpasögur og undirflokka hennar
miðla á skapandi hátt hugmyndum og skoðunum á glæpasögum á ensku