Í þessum valáfanga í líffræði fyrir náttúruvísindabraut er gerð grein fyrir viðfangsefnum vistfræðinnar, farið í helstu hugtök og undirstöðuatriði fræðigreinarinnar með áherslu á sérstöðu Íslands.Helstu efnisþættir eru: helstu hugtök vistfræðinnar, vistfræðirannsóknir, uppbygging vistkerfa, sérstaða Íslands, orkuflæði og efnahringrásir, líffræðilegur fjölbreytileiki, tegundasamsetning vistkerfa, stofnvistfræði, sjálfbær nýting auðlinda, umgengni við náttúruna, sjálfbærni og sérstaða íslenskrar náttúru í því samhengi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir vistfræði sem fræðigrein, þekki aðferðafræði hennar og öðlist skilning á helstu hugtökum. Nemendur skilji mikilvægi fjölbreytileika vistkerfa og þekki sérstöðu Íslands í því samhengi. Kynnt er mikilvægi þekkingar á vistfræði fyrir viðfangsefni daglegs lífs, tengsl við aðrar fræðigreinar og samhengi milli náttúrulegra vistkerfa og lífshátta mannsins. Þá er farið yfir áhrif mannsins á hin ýmsu vistkerfi og helstu áskoranir sem vistkerfi standa frammi fyrir og hvaða möguleika vistfræðin gefur til framtíðar. Nemendur verði búnir undir frekara nám í líffræði og umhverfisfræði.
LÍFF2GR05 og EFNA2EH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu vistfræðinnar
helstu hugtökum vistfræðinnar
vistfræðirannsóknum
uppbyggingu vistkerfa
sérstöðu Íslands
orkuflæði og efnahringrásum
líffræðilegum fjölbreytileika
tegundasamsetningu vistkerfa
helstu hugtökum í stofnvistfræði
sjálfbærri nýtingu auðlinda
tengslum vistkerfa og lífshátta manna
mikilvægi náttúruverndar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa vistfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
beita hugtökum vistfræðinnar
þekkja ólík vistkerfi
fara í vettvangsferðir
vinna skýrslur
fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru og umhverfismál í víðum skilningi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auka skilning sinn á vistfræðilegum viðfangsefnum
geta tekið rökstudda afstöðu til vistfræðilegra dægurmála
tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. vistfræðilegra og umhverfisfræðilegra þátta
afla sér frekari þekkingar á sviði vistfræðinnar
skilja viðfangsefni umhverfisfræðinnar í vistfræðilegu samhengi