Í þessum áfanga verður fjallað um norræna goðafræði og þær heimildir sem við höfum um hinn forna átrúnað. Farið í munnlega geymd og kenningar þjóðsagnafræða. Textar af ýmsum gerðum lesnir, greindir og tengdir við það umhverfi sem þeir spretta úr og áhrif þeirra á aðra texta rædd. Jafnframt verða skoðuð ýmis nútímaverk sem sækja efnivið sinn í eða spretta úr menningararfinum. Nemendur verða þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og heimildavinnu, auk þess sem þeir kynna sér fræðilegar greinar sem tengjast efninu. Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi verkefni sem reyna á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mismunandi hæfni nemenda, auka víðsýni og gagnrýna hugsun. Nemendur vinna ýmist hver fyrir sig eða með öðrum.
10 einingar á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
upphafi íslenskrar ritmenningar
munnlegri geymd
mismunandi tegundum texta og ólíkri miðlun þeirra, áhrifum og túlkun
íslenskri menningu, úr hverju hún sprettur og tengslum hennar við útlönd
þjóðsagnafræðum
áhrifum menningararfsins á nútímaverk
tengslum norrænnar goðafræði við evrópskar goðsögur
algengustu stílbrögðum sem einkenna goðsögur og þjóðsögur
uppbyggingu goðsagna og þjóðsagna
samfélagi, hugmyndafræði og viðhorfum miðaldamanna til heiðins átrúnaðar
heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu og gildi mismunandi heimilda
orðaforða sem þarf til að lesa í ólíkar heimildir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa ýmsa bókmenntatexta frá ólíkum tímum sér til gagns og gamans og geta fjallað um inntak þeirra
greina áhrif menningararfsins á nútímaverk
beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarhorn í bókmenntum
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
ganga frá heimildaverkefnum og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja, greina og tengja saman bókmenntatexta frá ólíkum tímum
skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
átta sig á samfélagslegum og bókmenntasögulegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
nýta sér heimildir af ýmsum toga í tengslum við námsefni og verkefnavinnu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.