Starfsþjálfun matvælaiðnaðar er samtals 22 einingar sem skiptist í þrjá áfanga. Þeir eru fimm, ellefu og sex einingar og eru á mismunandi þrepum. Nemendur velja einn vinnustað til að taka allt starfsnámið. Fyrir hverja einingu í starfsþjálfun þarf nemandi að vinna sem svarar þremur vinnudögum.
Í starfsþjálfun öðlast nemandinn aukna þekkingu, leikni og hæfni í öllum almennum störfum vinnslunnar undir leiðsögn fagaðila. Þá æfir hann sig í notkun helstu tækja og búnaðar á vinnustaðnum.
Starfsþjálfun 1
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnustaðamenningu og verksviðum vinnustaðarins
helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta vinnustaðinn og starfsstöðvar hans
áhöldum og tækjum sem notuð eru á vinnustaðnum gæðakerfi vinnustaðarins
gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
vinnslu við vélar
mikilvægi þrifa og þess að framkvæma sýnatökur
skráningakerfi á rekjanleika og framleiðsluferli
hvernig tryggja megi matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka tilsögn og fylgja ákveðnum starfsreglum og/eða -ferlum
vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar
vinna með hliðsjón af viðurkenndu verklagi
vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað á vinnustaðnum
sýna fram á gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
að umgangast stærri vélar við vinnslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað
skilja mikilvægi heilsuverndar í atvinnugreininni
skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
sinna vel þeim verkefnum sem honum eru falin
kynnast notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum
beita sér rétt við vinnu
sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað
vaxa og efla sig í starfi
greina ábyrgð sína sem virkur starfsmaður í fyrirtækinu og starfa í samræmi við hana
meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
bregðast við frávikum á vinnustaðnum
eiga lausnarmiðuð samskipti við þá sem hann veitir þjónustu og við samstarfsaðila sína
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Námsmat fer fram jafnt og þétt yfir starfstímann og er í höndum hverrar starfsstöðvar fyrir sig. Nái nemendur flestum þeirra markmiða og viðmiða sem áfangalýsingin setur fram stenst hann áfangann.