Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1712157739.02

    Starfsþjálfun 3
    STAÞ3MI06
    102
    Starfsþjálfun
    Starfsþjálfun í matvælaiðn
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    Starfsþjálfun matvælaiðnaðar er samtals 22 einingar sem skiptist í þrjá áfanga. Þeir eru fimm, ellefu og sex einingar og eru á mismunandi þrepum. Nemendur velja einn vinnustað til að taka allt starfsnámið. Fyrir hverja einingu í starfsþjálfun þarf nemandi að vinna sem svarar þremur vinnudögum. Í starfsþjálfun öðlast nemandinn aukna þekkingu, leikni og hæfni í öllum almennum störfum vinnslunnar undir leiðsögn fagaðila. Þá æfir hann sig í notkun helstu tækja og búnaðar á vinnustaðnum.
    Starfsþjálfun 2
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnustaðamenningu og verksviðum vinnustaðarins
    • eiginleikum þeirra hráefna sem hann vinnur með hverju sinni
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru á vinnustaðnum
    • gæðakerfi vinnustaðarins
    • gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
    • vinnslu við vélar
    • mikilvægi þrifa og þess að framkvæma sýnatökur
    • öryggiskröfum varðandi framleiðslu og eigið öryggi
    • skráningakerfi á rekjanleika og framleiðsluferli
    • hvernig tryggja megi matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
    • muninum á innri og ytri úttektum í matvælafyrirtækjum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka tilsögn og fylgja ákveðnum starfsreglum og/eða -ferlum
    • vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar
    • vinna með hliðsjón af viðurkenndu verklagi
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað á vinnustaðnum
    • nýta gæðakerfið til að hámarka gæði afurða
    • koma í veg fyrir krossmengun
    • sýna fram á gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
    • að umgangast stærri vélar við vinnslu
    • að fylgja gæða- og umhverfisstefnu
    • að tilkynna og skrá óhöpp og slys
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
    • fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað
    • skilja mikilvægi heilsuverndar í atvinnugreininni
    • skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
    • sinna vel þeim verkefnum sem honum eru falin
    • kynnast notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum
    • beita sér rétt við vinnu
    • sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað
    • vaxa og efla sig í starfi
    • greina ábyrgð sína sem virkur starfsmaður í fyrirtækinu og starfa í samræmi við hana
    • meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
    • meta hvenær á að mæla hitastig
    • bregðast við frávikum á vinnustaðnum
    • eiga lausnarmiðuð samskipti við þá sem hann veitir þjónustu og við samstarfsaðila sína
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    Námsmat fer fram jafnt og þétt yfir starfstímann og er í höndum hverrar starfsstöðvar fyrir sig. Nái nemendur flestum þeirra markmiða og viðmiða sem áfangalýsingin setur fram stenst hann áfangann.