Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1712575698.65

    Vinnustaðanám mjólkursamlag
    VINS2VM05
    59
    vinnustaðanám
    Vinnustaðanám mjólkursamlag
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist starfsemi mjólkursamlags í sem víðustu mynd. Nemendum gefst tækifæri á að læra og fá þjálfun sem þarf til að uppfylla þá þætti sem getið er um hér að neðan; þekkingar-, leikni- og hæfniviðmið. Verkstjóri/umsjónarmaður í fyrirtækinu ber ábyrgð á að nemandinn fái þau námstækifæri og þá þjálfun sem um ræðir hverju sinni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • aðferðum og vinnulýsingum sem lúta að sérhæfðum verkferlum
    • innra eftirliti vinnustaðar
    • fyrirkomulagi við innkaup og birgðastjórnun
    • vinnu við frágang, þrif og hreinlætisáætlunum á vinnustað
    • mikilvægi skráningar og gæðastaðla í tengslum við viðhald á tækjum
    • skipulagningu og undirbúningi fyrir framleiðslu og einfaldri framleiðslutækni sem og notkun viðeigandi framleiðslutækja
    • öryggiskröfum við notkun og umhirðu véla og tækja
    • uppbyggingu varmaskiptis, uppbyggingu skilju, dælum, ventlum, fitusprengjara og flæði í vélarsal mjólkurbús
    • ræktun baktería og rannsókn á þeim í smásjá
    • meðferð mjólkur frá bónda til mjólkurvinnslu
    • mikilvægi persónulegs hreinlætis fyrir framleiðsluna auk framleiðsluhreinlætis
    • að mjólkurvinnsla felur í sér skiljun, hitameðferð, fitusprengingu og ofursíun (UF) og hvaða áhrif þetta hefur á fitu, prótein, laktósa og sölt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja sérhæfða verkferla í samræmi við fyrirliggjandi verkefni
    • vinna samkvæmt tæknilegum aðferðum greinarinnar, þ.m.t. vinnslu – og framleiðslukerfi
    • nota aðferðir við að þrífa, sótthreinsa og viðhalda góðu persónulegu hreinlæti og framleiðsluhreinlæti
    • beita viðurkenndum aðferðum við notkun og meðferð vinnuvéla
    • beita viðurkenndum aðferðum hvað varðar öryggiskröfur, innra eftirlit og haccp á vinnustað
    • vinna með örverur bæði í hreinlætis og iðnaðarsamhengi
    • meðhöndla mjólk með ýmsum aðferðum
    • passa upp á mikilvægi persónulegs hreinlætis
    • beita hitameðferð og síun á mjólk
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði
    • skipuleggja verkferla og verkefnalista
    • meta störf sín og annarra á hlutlægan hátt
    • sýna fram á ábyrgð í umgengni á vinnustað
    • vinna samkvæmt góðum starfsháttum í mjólkursamlögum með hliðsjón af lögum og reglugerðum
    • vinna samkvæmt HACCP
    • setja fram almenn notuð gögn eins og vinnuseðla og innra eftirlit
    • tileinka sér hæfni til að taka þátt í og skrá vinnuferla sem eru dæmigerðir fyrir námið
    • kunna á viðeigandi eftirlits og framleiðslubúnað sem oft er tölvustýrður
    • vinna með örverur bæði í hreinlætis og iðnaðarsamhengi
    • hafa skilning á áhrifum framleiðsluaðferða á innihald mjólkurinnar
    • skilja þróun samfélagsins og mjólkuriðnaðarins
    • nota hugtök úr greininni
    Námsmat fer fram jafnt og þétt yfir starfstímann og er í höndum hverrar starfsstöðvar fyrir sig. Nái nemendur flestum þeirra markmiða og viðmiða sem áfangalýsingin setur fram stenst hann áfangann.