Nemandinn kynnist undirstöðuatriðum myndbyggingu og þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð. Hann skoðar hvernig eðli myndflatar og rýmis breytist eftir því á hvaða hátt línur og form raðast upp. Nemandinn kynnist eiginleikum og virkni ljós-, textíl- og efnislita og þjálfast í blöndun og framsetningu þeirra. Hann vinnur bæði á tvívíðum fleti og í rými og beitir margvíslegum efnum og aðferðum í þeirri vinnu. Hann kynnist verkum listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Nemandinn ígrundar stöðugt verk sín í samvinnu við kennara og aðra nemendur og þjálfast í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum í lita og formfræði
virkni og áhrifum lína, forma, lita og ljóss á mismunandi stöðum í myndfleti og rými
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða myndbyggingu með óhlutbundnum formum, línum, litum og ljósi og fá fram mismunandi áhrif á myndfleti og í rými
beita mismunandi efnum og áhöldum og blanda liti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rannsaka óhlutbundna myndbyggingu sjálfstætt með mismunandi efnum og aðferðum
nýta grundvallaratriði í óhlutbundinni myndbyggingu, lita og formfræði til að tjá eigin hugmyndir
nýta verk myndlistarmanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin verk
ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og aðra nemendur og nýta til þess grundvallarhugtök í lita- og formfræði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.