Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1713276995.01

    Grafísk uppsetning, vektorteikning og ferilmappa
    MARG1GH05(AV)
    2
    margmiðlun
    Grafísk uppsetning, vektorteikning
    í vinnslu
    1
    5
    AV
    Nemendur kynnast grunnatriðum í grafískri uppsetningu og vektorteikningu og auka skilning sinn á mikilvægi skipulagðrar hugsunar við grafíska framsetningu m.a. í samhengi við gerð ferilmöppu til kynningar á eigin verkum. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við skapandi úrvinnslu verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast möguleikum vektorteikningar og fá þjálfun í að vinna með samspil mynda og texta. Nemendur þjálfast í ferilmöppugerð sem mögulegt er að nýta vegna umsóknar um framhaldsnám á háskólastigi.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hönnunarforritum og möguleikum þeirra til skapandi úrvinnslu
    • grunnatriðum í grafískri uppsetningu
    • grunnatriðum í vektorteikningu
    • samspili mynda og texta í grafískri framsetningu
    • hvernig gengið er frá stafrænu efni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með vektorteikningu
    • vinna með myndir og texta í hönnunarforritum
    • velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum
    • fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.