Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1713277355.74

    Listasaga frá hellamálverkum fram að iðnbyltingu
    LISA1HB05(AV)
    1
    ListaSaga
    Hellamálverk, iðnbylting
    í vinnslu
    1
    5
    AV
    Nemendur kynna sér helstu stílbrigði og þróun í lista- og hönnunarsögu, á heimsvísu og á Íslandi, frá öndverðu fram að iðnbyltingu. Markmið áfangans er að nemendur geri sér grein fyrir eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Helstu þræðir lista- og hönnunarsögunnar eru raktir og settir í samhengi við samfélagsbreytingar á hverjum tíma. Nemendur nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu stíleinkennum og stefnum í listasögu frá hellamálverkum til og með iðnbyltingu og helstu hugtökum sem tengjast þeim
    • menningarlegri og hugarfarslegri þróun og margbreytileika í mannlegu samfélagi
    • hvernig listsköpun er nátengd samfélagslegum veruleika: landfræði, áhrif gróður og veðurfar, tækniframfarir á hverjum stað á hverjum tíma.
    • samfélagslegu, menningarlegu og efnahagslegu gildi listsköpunar
    • tengslum heimspeki, myndlistar og hönnunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og tileinka sér gagnrýna hugsun
    • nota fagbókmenntir, tímarit, veraldarvefinn og fjölmiðla í upplýsingaöflun og gagnasöfnum
    • vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt undir leiðsögn kennara að afmörkuðum verkefnum
    • nota hugtök sem tengjast faginu til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
    • nota mismunandi miðlunarleiðir í framsetningu verkefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir niðurstöðum verkefna sinna á fjölbreyttan, áhugaverðan og gagnrýninn hátt
    • bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar og hvaða áhrif listsköpun hefur á samfélag á hverjum tíma
    • sýna sjálfstæði við útfærslu verkefna, einn og í hópavinnu undir leiðsögn kennara
    • setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og geri sér grein fyrir hvaða áhrif staðhættir, náttúruauðlindir, tækniframfarir og stjórnarfar hafa á listræna sköpun/myndlist
    • taka þátt í samvinnu með umburðarlyndi og virðingu fyrir öðrum að leiðarljósi
    • ræða um verkefni sín við aðra með almennri ígrundun og samanburði
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.