Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Unnið er með orðaforða sem m.a. tengist daglegu lífi, umhverfismálum, lífsstíl, menningu og listum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast danskri og norrænni menningu og fjallað verður um siði og venjur dansks samfélags. Í áfanganum er notast við ýmsa rauntexta auk bókmenntatexta. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna. Kröfur áfangans samsvara hæfniþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
DANS2ML03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
auknum orðaforða sínum
aukinni munnlegri og skriflegri færni sinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita margs konar texta
beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum um efni sem hann þekkir
geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér
geta skrifað margs konar texta
skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
leita sér upplýsinga og fróðleiks á dönskum netsíðum.