Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Listnáms- og hönnunarbraut - textíllína (Staðfestingarnúmer 57) 15-57-3-7 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Með námi á listnáms- og hönnunarbraut er lagður grunnur að listiðkun og frekara námi í listgreinum í sérskólum eða í skólum á háskólastigi. Menntun á listnáms- og hönnunarbraut stuðlar að eflingu sköpunargáfu sem gefur góðan grunn fyrir nám í öllum skapandi greinum sem tengjast manngerðu umhverfi, skemmtana-, tölvu-, tísku- og listheimi. Listnám veitir tækifæri til að þroska fjölbreyttan og persónulegan tjáningarmáta og dýpka skilning á menningu, samfélagi og umhverfi. Í kjarna listnáms- og hönnunarbrautar læra nemendur um grunnatriði sjónlista, listasögu og menningarlæsi. Á textíllínu er áhersla lögð á listgreinar á sviði textílhönnunar og sérstaklega yfirborðshönnun efna. Auk þessa stunda nemendur almennt bóklegt nám.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Skipulag: Á listnáms- og hönnunarbraut miðast kennsluaðferðir við að skapa jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms í samvinnu við nemandann þar sem hann tileinkar sér sjálfstæð vinnubrögð og ræktar hæfni sína. Sérstaklega er hlúð að sköpunarkraftinum með því að örva skynjun, ímyndunarafl, tæknilega færni og gagnrýna hugsun. Nemendur fá stöðuga endurgjöf á vinnu sína. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og fela í sér eftirfarandi: Kveikju sem byggir á reynslu nemandans en jafnframt ákveðnu nýnæmi. Sýnikennslu þar sem kennarinn miðlar upplýsingum, sýnir vinnubrögð og lýsir hugtökum. Nemandinn fær að vita til hvers er ætlast og af hverju en hefur jafnframt rými fyrir persónulega nálgun. Vinnustofureynslu þar sem nemandinn lærir með því að gera, líkt og í eigin vinnustofu. Rannsókn nemandans er kjarninn í náminu og eru verkefni opin þannig að engin skýr svör eru um rétt eða röng. Nemandinn er hvattur til að reyna sig við ögrandi verkefni og líta á mistök sem tækifæri. Tengingu við umhverfi þar sem vinna nemandans er sett í samhengi við umhverfi, listasögu og menningu. Ígrundun nemandans á eigin verkum og annara þar sem hann leitast við að skilja eigin árangur og bæta.
Námsmat Námsmat er fjölbreytt og tekur mið af fjölbreyttum kennsluháttum, þekkingar-, leikni og hæfniviðmiðum og ólíkum nemendum. Lögð er áhersla á leiðsagnarmat og símat sem gefur nemendum uppbyggilega og hvetjandi leiðsögn og metur vinnu þeirra jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats kemur fram í námsmatsreglum skólans og kennsluáætlun hvers áfanga.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Námi á hönnunar- og textílbraut lýkur með stúdentsprófi. Brautin er 202 einingar og útskrifast nemendur með hæfni á 3. þrepi. Námstími er 3 – 4 ár og ætli nemandi að ljúka námi á 3 árum þarf hann að ljúka 67 einingum á ári að jafnaði. Til að standast námsmat í áfanga og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá. Við námslok skal hlutfall eininga á 1. þrepi vera 17 – 33% , á 2. þrepi 33 – 50% og á 3. þrepi 17 – 33%. Nemanda er heimilt að útskrifast með allt að 10% eininga á 4. þrepi.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • hagnýta sérhæfða þekkingu og leikni í textílhönnun til að útfæra verk sín
  • sýna frumkvæði og skapandi nálgun við gerð verka
  • sýna sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
  • nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningu við sköpun og framsetningu verka
  • setja þekkingu á fagsviði sínu í samfélagslegt og alþjóðlegt samhengi
  • gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki lista
  • skynja, greina, tjá sig um og meta eigin verk og annarra á ábyrgan og gagnrýninn hátt
  • takast á við frekara nám, einkum á sviði lista og/eða hönnunar
  • vera virkur þátttakandi í skólastarfinu og lýðræðissamfélagi
  • tileinka sér víðsýni, gagnrýna hugsun og samkennd
  • tjá og rökstyðja skoðanir sínar og niðurstöður á skýran hátt

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

202  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Brautarkjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Spænska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Efnafræði
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Líffræði
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Félagsfræði
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Saga
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Sálfræði
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Uppeldisfræði
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 8

Bundið áfangaval

2 af 4
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 2 af 4

Bundið áfangaval

10 af 45
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 10 af 45

Bundið áfangaval

5 af 10
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 5 af 10

Bundið áfangaval

15 af 80
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 15 af 80

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Nei, frjálst val er ekki leyft

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Mikið reynir á talna- og upplýsingalæsi nemenda í fjölmörgum áföngum brautarinnar þ.á.m. lokaverkefninu. Þar eru gerðar kröfur um vinnubrögð á háskólastigi, þ.e. að nemendur séu læsir á upplýsingar frá ólíkum miðlum, geti nýtt sér margvíslega tækni í upplýsingaleit, aflað gagna, flokkað þau og nýtt sér upplýsingarnar á gagnrýninn hátt. Nemendur fá þjálfun í að lesa, meta, túlka og kynna tölfræðilegar og myndrænar upplýsingar.
Námshæfni:
  • Á námstímanum er unnið að því að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda og gera þá ábyrga í náminu. Nemendur greina styrkleika sína og veikleika og fá aðstoð við að setja sér raunhæf námsmarkmið, forgangsraða verkefnum, skipuleggja nám sitt og vinnutíma. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og nemendur þjálfast í að vinna ólík verkefni sem reyna á ýmsa hæfni. Þeir fá þjálfun í að deila þekkingu sinni með öðrum og er það gert t.d. í gegnum hópavinnu, paravinnu, kynningar á verkefnum samvinnunám og fleira. Nemendur læra að meta eigið vinnuframlag og annarra t.d. með sjálfsmati og jafningjamati. Með stigvaxandi kröfum í námi lærir nemandi að takast á við ný verkefni og áskoranir, yfirstíga hindranir og nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra verkefna.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Í gegnum skólastarfið nýta nemendur sköpunarkraft sinn á margvíslegan hátt í lífi og starfi innan skólans og utan. Í skólanum eru settar upp leiksýningar, listsýningar, söngkeppnir og ýmsar skemmtanir sem krefjast þess að nemendur sýni frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun og nýti þekkingu sína til að skapa og búa til eitthvað nýtt og draga lærdóm af. Félagslífið skipar þar stóran sess og má helst nefna leiklist og tónlist í því sambandi. Í gegnum félagslífið öðlast nemendur skilning á tengslum menningar og listar við atvinnusköpun og samfélagsþróun. Í náminu vinna nemendur verkefni og skila þeim af sér með ólíku sniði t.d. sem myndbandi, vefsíðu, veggspjaldi, bæklingi, úrklippum, munnlegri kynningu, ferilmöppu eða smásögu. Þá reynir á frumkvæði og skapandi hugsun og að nemendur geti miðlað þekkingu sinni og hæfni á skapandi hátt og með ólíkum leiðum.
Menntun til sjálfbærni:
  • Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði í samfélaginu og umhverfi sínu. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hvernig vistkerfi jarðar setur manninum takmarkanir, sanngjarna skiptingu auðlinda og skynsamlega nýtingu þeirra. Nemendur vinna með upplýsingar um eigin neysluvenjur og setja í samhengi við nýtingu náttúruauðlinda. Einnig taka þeir þátt í samræðum sem varða umhverfisvitund og sjálfbærni á ábyrgan og rökrænan hátt. Nemendur taka ábyrga og upplýsta afstöðu til umhverfismála og nýtingu náttúruauðlinda. Lögð er áhersla á að nemendur virði mannréttindi, skoðanir annarra og umhverfi sitt.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Nemendur eru hvattir til að tjá sig á erlendum tungumálum í því tungumálanámi sem þeir leggja stund á. Nemendur fá fjölbreytta texta til að vinna með, tjá sig bæði munnlega og skriflega um innihald textanna og auka orðaforða sinn um leið. Einnig er lögð rík áhersla á samræðu og tjáningu í ræðu og riti t.d. um bókmenntir og kvikmyndir. Í tungumálanáminu er leitast við að veita nemendum innsýn í ólíka menningarheima og siði sem einkennir þau landsvæði þar sem viðkomandi mál er talað. Í mörgum öðrum greinum en tungumálum kynna nemendur sér ítarefni og nýta sér heimildir á erlendu tungumáli í tengslum við verkefnavinnu og fá þannig þjálfun í að lesa viðkomandi fagmál. Skólinn leitast við að taka þátt í samskiptum við skóla og skyldar stofnanir erlendis og er lögð áhersla á að nemendur taki þátt í erlendum samstarfsverkefnum.
Heilbrigði:
  • Skólinn tekur þátt í verkefni um heilsueflandi framhaldsskóla. Lögð er áhersla á heilsusamlegan lífsstíl, næringu, hreyfingu og geðrækt. Nemendur eru ábyrgir fyrir eigin heilsu, líkamlegri og andlegri og taka ábyrga afstöðu til eigin velferðar og heilbrigðis. Að loknu námi þekkja nemendur gildi reglulegrar hreyfingar og mikilvægi fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu. Við skólann er markvisst unnið að fræðslu sem tengist forvörnum. Markmið slíkrar fræðslu er að nemendur séu meðvitaðir um skaðsemi tóbaksnotkunar, áfengisneyslu og notkunar annarra vímuefna ásamt því að þeir taki afstöðu gegn einelti og öðru ofbeldi og hverskonar mismunun. Fjallað er um neyslu og fíkn, tengsl hugar og líkama og ýmsa félagslega þætti sem stýra hegðun og athöfnum einstaklinga og hafa áhrif á heilbrigði og lífsstíl.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Með auknu símati í skólanum er lögð áhersla á vinnu nemenda þar sem reynir á alla þætti læsis, tjáningar og samskipta. Í skólastarfinu reynir á samskiptahæfni og samskipti nemenda t.d. í félagslífinu og við alls kyns verkefnavinnu. Má þar nefna kynningar nemenda á verkefnum sínum, í gegnum samræðu í para- og hópavinnu, í umræðum og með þátttöku í félagsstörfum. Nemendur fá þjálfun í að svara spurningum á málefnalegan hátt og að rökstyðja skoðanir sínar og niðurstöður í ræðu og riti. Með aukinni þjálfun, stíganda í námi og sérhæfingu verður orðaforði nemenda fjölbreyttari og málið blæbrigðaríkara.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Í skólanum er stuðlað að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í lýðræðissamfélagi t.d. með nemendaþingi þar sem nemendum er skipt í smærri hópa og þeir fá ákveðið viðfangsefni til að fjalla um, mynda sér skoðun á og skila tillögum/ábendingum um hvað vel er gert eða betur má fara. Ýmis málefni geta verið í brennidepli t.d. skólareglurnar, félagsstörfin, aðbúnaður og þjónusta. Í skólanum er kennslumat lagt fyrir nemendur en í slíku mati meta nemendur kennslu, aðstöðu og námsefni í þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Niðurstöðurnar eru notaðar til að bæta gæði kennslunnar. Að auki er lögð fyrir nemendur þjónustukönnun en þar er lagt upp með að meta ýmsa þjónustu sem skólinn veitir nemendum t.d. þjónustu bókasafns, skrifstofu, mötuneytis o.s.frv. Að auki eiga nemendur fulltrúa í skólaráði og skólanefnd, í skólanum er einnig starfrækt hagsmunaráð nemenda og nemendafélag. Nemendur vinna ýmis verkefni sem fjalla t.d. um mannréttindi, siðferðisvitund og lýðræði og eru hvattir til umburðarlyndis og virðingar fyrir mismunandi lífsgildum. Með virkri þátttöku í skólastarfinu, náminu og með þeim tækifærum sem nemendum bjóðast til áhrifa þjálfast þeir í því að vera virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi.
Jafnrétti:
  • Í skólanum er í gildi jafnréttisáætlun sem segir að stuðla skuli að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Jafnframt er stefnt að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi. Lögð er áhersla á að starfið á brautinni stuðli að jöfnum rétti kynja til náms og að nemendur séu hvattir til að velja sér nám eftir áhuga. Með þessu er leitast við að gera nemendur meðvitaða um áhrif fyrirmynda og staðalmynda á eigin ímynd og lífsstíl og að þeir geti myndað sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu. Nemendur vinna ýmis verkefni sem tengjast jafnrétti í víðum skilningi t.d. fordómum, fjölmenningu, kynhneigð, fötlun og trúarbrögðum. Þá læra nemendur að greina áhrif ýmissa þátta á líf einstaklinga og hópa, t.d. stéttar, trúarbragða, þjóðernis, kynhneigðar, litarháttar, búsetu o.fl.