Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Íþróttir og útivist, útivistarbraut (Staðfestingarnúmer 27) 15-27-3-7 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Bókleg og verkleg námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Útivistarbraut, er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Á útivistarbraut er áhersla á grunngreinar og sérgreinar í útivist, íþróttum og lýðheilsu, s.s. fjallamennsku, íþróttagreinar, íþróttafræði og næringarfræði. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og er nám á henni heppilegur undirbúningur fyrir frekara nám á háskólastigi, m.a. á sviði kennslu, íþróttafræða og útivistar hér á landi sem erlendis.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Skipulag: Bókleg og verkleg námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Útivistarbraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir.
Námsmat Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Nemandi ljúki 33-34 einingum á önn til að ljúka námi á þremur árum. Uppbygging náms skal vera í samræmi við reglur um einingar á hæfniþrepum (sjá skipulag brautar). Nánari útfærslu má finna í skólareglum.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • sjá um viðburð sem tengist íþrótta- og útivistarstarfi, s.s. kennslu, þjálfun, gönguferð eða móti sem tekur til undirbúnings, skipulags, framkvæmdar og mats ásamt því að geta metið hlutlægt eigin frammistöðu við verkið og nýtt niðurstöðuna til að ná betri árangri.
  • taka þátt í upplýstri umræðu um málefni er tengjast hreyfingu, heilsueflingu, þjálfun og útivist
  • taka ábyrgð á þjálfun og leiðbeina öðrum
  • beita fræðilegri og verklegri undirstöðuþekkingu
  • greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
  • taka þátt í rökræðum um efni sem tengjast hreyfingu, heilsu, þjálfun og útivist
  • stunda íþróttir og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, t.d. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
  • þekkja hvernig má nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • flétta hreyfingu inn í daglegt líf og starf.
  • vera meðvitaður um umhverfi sitt, njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
  • stunda frekara nám einkum á sviði kennslu íþróttafræða og útivistar á háskólastigi

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

200  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Stúdent kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Útivistarbraut sérhæfing
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið áfangaval

15 af 50
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 15 af 50

Bundið áfangaval

20 af 37
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 20 af 37

Bundið áfangaval

4 af 14
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 4 af 14

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: 40 einingar í frjálsu vali. Nemendur þurfa að gæta að hlutfalli eininga á hæfniþrep, einingar á 1. hæfniþrepi mega ekki vera fleiri en 67, einingar á 2. hæfniþrepi ekki fleiri en 100 og einingar á 3. hæfniþrepi þurfa að vera a.m.k. 33.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • með því að þjálfa nemendur í því að nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit
  • með því að þjálfa nemendur í að afla sér gagna, flokka og nýta sér upplýsingar á gagnrýninn hátt
  • með því að nemendur vinni með talnagögn bæði í raungreinum og félagsgreinum
Námshæfni:
  • með því að leggja áherslu á að efla sjálfstæð og öguð vinnubrögð nemenda
  • með því að kenna nemendum að meta vinnu sína og setja sér raunhæf markmið
  • með því að nemendur geri áætlanir um uppbyggingu náms síns og áætluð námslok
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • með því að í kjarna allra brauta er listaáfangi
  • með því að leggja áherslu á skapandi verkefnavinnu nemenda
  • með því að gefa nemendum tækifæri til að velja sér fjölbreytta valáfanga
Menntun til sjálfbærni:
  • með því að gera nemendur meðvitaða um umhverfi sitt, kenna þeim að njóta þess og virða og nýta á skynsamlegan hátt
  • með þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum
  • með því að vekja athygli nemenda á samfélagi sínu og möguleikunum sem þar felast
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • með því að þjálfa nemendur í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir bæði munnlega og skriflega
  • með umfjöllun um mismunandi samfélög og menningarhópa
Heilbrigði:
  • með því að skólinn er heilsueflandi framhaldsskóli
  • með því að styðja nemendur til að stunda hreyfingu með fjölbreyttu úrvali af íþróttaáföngum
  • með því að fylgja settri forvarnarstefnu og hvetja nemendur til að taka heilbrigðar ákvarðanir í lífinu
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • með því að þjálfa nemendur í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir bæði munnlega og skriflega
  • með því að efla tengsl náms við samfélagið og efla menningarlæsi nemenda
Lýðræði og mannréttindi:
  • með aðkomu nemenda að ákvörðunum varðandi skólastarfið
  • með því að þjálfa nemendur í lýðræðislegu gildismati
Jafnrétti:
  • með því að bjóða nemendum upp á nám við hæfi hvers og eins
  • með því að hvetja nemendur til að fagna fjölbreytileikanum í þjóðfélaginu
  • með því að bjóða upp á áfanga þar sem fatlaðir og ófatlaðir nemendur vinna saman