Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Félagsvísindabraut (Staðfestingarnúmer 118) 15-118-3-6 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Námi á félagsvísindabraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið félagsvísinda. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í félags- og menntavísindum, sagnfræði, sálfræði, fjölmiðlafræði og uppeldisgreinum. Námið er 200 framhaldsskólaeiningar og því lýkur með stúdentsprófi.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði í skólanámskrá skólans.
Skipulag: Nám á félagsvísindabraut er fyrst og fremst bóklegt og fer fram í skólanum. Á brautinni er lögð áhersla á góða almenna menntun, traustan grunn í kjarnagreinunum þremur, íslensku, ensku og stærðfræði og sérhæfingu í félagsvísindum.
Námsmat Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti og er ýmist samsett úr símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats er í höndum kennara hverrar faggreinar. Í upphafi annar skal nemendum kynnt námsáætlun, námsmarkmið og tilhögun námsmats í hverjum áfanga.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Miðað er við að nemandi í fullu námi ljúki 33-34 framhaldsskólaeiningum á önn. Lokavitnisburður skal vera í heilum tölum á bilinu 1-10 og lágmarkseinkunn til að standast áfanga er 5. Nánari reglur um námsframvindu, frávik frá henni og skólasókn má finna í skólanámskrá skólans.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám.
  • nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt og sýna þannig ábyrgð á námi sínu.
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni.
  • nýta sér þekkingu sína á samfélaginu og félagslegu umhverfi til að taka þátt í upplýstri umræðu í lýðræðislegu þjóðfélagi.
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra og efla þannig víðsýni sína og virðingu fyrir skoðunum annarra.
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi.
  • nota góða íslensku í ræðu og riti.
  • nota upplýsingatækni á ábyrgan hátt.
  • nýta sér góða almenna þekkingu á sviði félagsvísinda og sagnfræði.
  • þekkja helstu hugmyndir og strauma um menningu, stjórnmál, trúmál og uppeldi í fortíð og nútíð.
  • greina einkenni og þróun samfélaga og átta sig á helstu mótunaraðilum þess.
  • meta og greina niðurstöður rannsókna.
  • takast á við frekara nám, einkum í félags-, mennta- og hugvísindum

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

200  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Brautarkjarni - félagsvísindabraut
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Þriðja mál, Spænska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Þriðja mál, Þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Bundið áfangaval

5 af 20
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 5 af 20

Bundið áfangaval

2 af 11
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 2 af 11

Bundið áfangaval

20 af 60
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 20 af 60

Bundið áfangaval

3 af 6
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 3 af 6

Bundið áfangaval

20 af 25
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 20 af 25

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur velja 22 einingar úr áfangasafni skólans. Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. Mikilvægt er að nemendur dýpki sig í ákveðnum greinum til að vera betur í stakk búnir að takast á við frekara nám og mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Í skólanum reynir á þessa þætti í fjölmörgum áföngum brautarinnar. Nemendur læra að afla gagna, flokka, vinna úr, nota og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt.
  • Í félagsvísindum og sagnfræði eru nemendur þjálfaðir i að lesa tölfræðilegar og myndrænar upplýsingar og setja þær fram á aðgengilegan hátt.
  • Í stærðfræði er lögð áhersla á að nemendur læri talnameðferð.
  • Í raungreinum er er framsetning og túlkun upplýsinga og lestur gagna úr töflum og línuritum æfð. Þá er gerð krafa um að nemendur læri að fara með kort, talnagögn, beiti jöfnum og læri að lesa úr þeim.
  • Í tungumálanámi eru nemendur látnir vinna með erlenda gjaldmiðla, breytilegan hnattrænan tíma og skipuleggja ferðalög sem allt tengist samskiptum með tölur og upplýsingar.
Námshæfni:
  • Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er unnið að því að efla sjálfstæði nemenda í námi og vinnubrögðum. Þeir eru þjálfaðir í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim. Kennsluaðferðir eru margvíslegar og fjölbreyttar og reyna á þekkingu, leikni og hæfni. Það sama má segja um námsmat. Þá eru nemendur hvattir til að nýta styrkleika sína í námi.
  • Í félagsvísindum og sagnfræði er lögð áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og námsgögn. Krafist er gagnrýninnar hugsunar og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Lagt upp úr því að nemendur skoði sjálfa sig og finni styrkleika sína í námi.
  • Í stærðfræðiáföngum þurfa nemendur að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og stöðugt að meta eigið vinnuframlag og læra þannig að þekkja eigin styrkleika og veikleika.
  • Í raunvísindum er lögð áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og að nemendur kynnist vinnubrögðum raunvísinda í margvíslegum viðfangsefnum. Bóklegt nám er fjölbreytt og byggist upp á fyrirlestrum, hópvinnu, umræðum, vettvangsferðum og margs konar æfingum.
  • Í öllum íslenskuáföngum þurfa nemendur að að þjálfa hæfni sína m.a. með að skrifa skýran texta, beita málinu á fjölbreyttan hátt, tjá rökstudda afstöðu, draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun og flytja fyrirlestra.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Margt í skólastarfinu flokkast undir skapandi starf s.s þátttaka nemenda í skóla- og félagslífi. Í mörgum námsgreinum reynir einnig á skapandi hugsun og hagnýtingu þekkingar.
  • Nemendur á félagsvísindabraut skila t.d. verkefnum með ýmsum hætti, s.s. skýrslum, ritgerðum, myndböndum, veggspjöldum og fyrirlestrum.
  • Nemendur á félagsvísindabraut taka áfanga í sköpun og þar reynir sköpunarferlið á frumkvæði, ígrundun og gagnrýna hugsun.
  • Í lokaverkefni velur nemandi sitt sérsvið og þar reynir á hagnýtingu þekkingar, rökstuðning og skapandi hugsun.
  • Margt í skólastarfinu flokkast undir skapandi starf s.s þátttaka nemenda í skóla- og félagslífi. Í mörgum námsgreinum reynir einnig á skapandi hugsun og hagnýtingu þekkingar.
  • Nemendur á félagsvísindabraut skila t.d. verkefnum með ýmsum hætti, s.s. skýrslum, ritgerðum, myndböndum, veggspjöldum og fyrirlestrum.
  • Nemendur á félagsvísindabraut taka áfanga í sköpun og þar reynir sköpunarferlið á frumkvæði, ígrundun og gagnrýna hugsun.
  • Í lokaverkefni velur nemandi sitt sérsvið og þar reynir á hagnýtingu þekkingar, rökstuðning og skapandi hugsun.
Jafnrétti:
  • Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er ekki gert upp á milli nemenda og allir fá tækifæri til að þroska hæfileika sína. Boðin er stoðkennsla fyrir þá nemendur sem þurfa, aðstoð í námsveri og aðstoð á prófatíma. Í skólanum starfar jafnréttisnefnd sem hefur sett sér jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun og fylgist jafnframt með að þeim sé fylgt.
  • Í félagsvísindum er lögð áhersla á að nemendur dýpki skilning sinn á skipulagi samfélagsins og verði færir um að taka virkan þátt í umræðum um samfélagsleg viðfangsefni og geti myndað sér eigin skoðanir með gagnrýnið viðhorf og jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.
  • Í sagnfræði er í öllum áföngum fjallað um jafnrétti jafnt sem misrétti bæði félagslegt og kynbundið á ýmsum tímum.
  • Í íslenskuáföngum er lögð áhersla á að gera hlut kvenna sýnilegan, en einnig á jafnrétti í víðasta skilningi orðsins. Leitast er við að skapa umræður um jafnrétti kynjanna og jafnrétti þjóðfélagshópa.
  • Í verklegum æfingum í raungreinum eru æfingar aðlagaðar mismunandi þörfum nemenda ef þarf.
Menntun til sjálfbærni:
  • Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Lögð er áhersla á skilning á þeim takmörkunum sem vistkerfi jarðar setur manninum, jöfnuð innan og milli kynslóða, skynsamlega nýtingu auðlinda og sanngjarna skiptingu þeirra.
  • Í félagvísindum læra nemendur um sjálfbærni og skiptingu auðlinda. Haft er að leiðarljósi að auka skilning á sameiginlegri ábyrgð á framtíð mannkyns á jörðinni.
  • Í sagnfræði er fjallað um áhrif mannkynsins á vistkerfi jarðarinnar og í samtímasögu er sérstök áhersla á hlutskipti fátækra ríkja í samanburði við Vesturlönd og reynt að skýra það út frá vistfræði og sjálfbærni.
  • Í efnafræði læra nemendur grunnhugtök og aðferðir efnafræðinnar þar sem meðal annars vatnsnotkun og vistspor manna eru rannsökuð.
  • Í raungreinum er fjallað um hugtök eins og vistspor, óafturkræfar framkvæmdir, vistræna orkugjafa, vistvæna matvælaframleiðslu, gróðurhúsaáhrif í samhengi við samábyrgð mannkyns og takmörk jarðar. Nemendur öðlast grundvallarþekkingu og skilning til að taka upplýsta afstöðu sem eykur líkur á að þeir hafi sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Þá er fjallað um gildi umhverfis og náttúru og umgengni um náttúruna.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Í skólanum er lögð áhersla á að nemendur læri erlend tungumál. Tungumálakunnátta er lykill að upplýsingum og gefur aðgengi að faglegu efni á erlendum tungumálum. Hún er ein af forsendum þess að geta átt farsæl samskipti og samvinnu við einstaklinga af öðru þjóðerni. Lögð er áhersla á erlend samskipti og að sem flestum nemendum bjóðist að taka þátt í nemendaskiptaverkefnum erlendis.
  • Í efri áföngum í félagsvísindum og sagnfræði lesa nemendur fræðigreinar á erlendum málum og nýta sér í tengslum við verkefnavinnu.
  • Í dönskunámi er kappkostað að allir nemendur auki orðaforða sinn, tjái sig á tungumálinu og fái innsýn í danska menningu og hugsunarhátt.
  • Í enskunámi er lögð rík áhersla á að nemendur öðlist orðaforða sem geri þeim kleift að tileinka sér lesefni í áframhaldandi starfi eða námi og átt innihaldsrík samskipti á ensku sem einkennast af háttvísi og virðingu. Þeir geti beitt ensku án vandræða og geti tekið þátt í umræðum og rökræðum. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita rithefðum sem við eiga í texta, með inngangi, vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi. Í áföngum á öðru og þriðja þrepi fer kennsla fram á ensku og þar er lögð áhersla á sérhæfða fræðilega texta og hlustunarefni.
  • Í hvort sem er þýsku- eða spænskuáföngum eru nemendur þjálfaðir í að tjá sig munnlega og skriflega með það að markmiði að auka sjálfstraust þeirra til að nota tungumálið við mismundandi tækifæri.
Heilbrigði:
  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er heilsueflandi framhaldsskóli og í skólastarfinu öllu er lögð áhersla á heilsusamlegan lífsstíl. Allir nemendur á stúdentsbrautum taka 8 framhaldsskólaeiningar tengdar íþróttum, heilsu og skyndihjálp og læra þannig að bera ábyrgð á eigin heilsu.
  • Í félagsvísindagreinum er lögð áhersla á félagslegt og andlegt heilbrigði, félagsmótun einstaklinga og hvernig hann hefur áhrif á umhverfi sitt.
  • Í sagnfræði eru heilbrigðismál sett í sögulegt samhengi og fjallað um farsóttir, lækningar og framfarir í læknis- og heilbrigðisfræðum.
  • Í íþrótta – og heilsuáföngum er unnið að því að nemendur geri hreyfingu og þátttöku í íþróttum að hluta af daglegu lífi sínu og auki þannig lífsgæði sín. Þeir fá fræðslu um mataræði, mikilvægi hreyfingar og svefns og skaðsemi vímuefna og lyfja.
  • í ensku eru lesnir textar sem tengjast heilsu og heilbrigðum lífsháttum.
  • Í efnafræði er fjallað um tannheilsu og mengunarefni í náttúrunni.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Skólinn leggur mikla áherslu á að efla læsi, samskiptahæfni og tjáningu nemenda í öllu námi. Nemendur þjálfast í læsi, tjáningu og samskiptum í alls kyns verkefnavinnu og verkefnaskilum í ræðu og riti að auki þurfa þeir að að rökstyðja skoðanir og niðurstöður.
  • Í félagsgreinum og sagnfræði eru læsi og tjáning í forgrunni. Lögð er áhersla á lestur og skilning fræðilegra texta. Mikið er lagt upp úr góðum textaskilningi, samskiptum, tjáningu og hópvinnu.
  • Í öllum íslenskuáföngum þjálfast nemendur í læsi, þurfa að gera grein fyrir skoðunum sínum og taka þátt í samræðum. Eftir því sem ofar dregur verður mál nemenda blæbrigðaríkara, orðaforði fjölbreyttari og bygging og frágangur texta markvissari.
  • Í raungreinaáföngum læra nemendur að lesa úr línuritum og myndrænum upplýsingum. Þá þjálfast þeir í að setja texta fram á skýran og greinilegan hátt þannig að hver liður verkefnis sé útskýrður áður en tekið er til við þann næsta.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Nemendur taka þátt í að móta skólastarfið með ýmsum hætti. Þannig er stuðlað að því að gera nemendur virka og meðvitaða um að móta samfélag sitt. Forsvarsmenn nemendafélagsins sitja í skólaráði og eiga þannig þátt í ákvarðanatöku um ýmis málefni. Tvisvar á ári eru haldnir skólafundir sem allir nemendur skólans taka þátt í. Á þeim er leitað eftir skoðunum nemenda á ýmsu sem tengist skólahaldinu og úrbætur gerðar í framhaldinu eftir þeirra ábendingum. Auk þess er beitt lýðræðislegum kennsluaðferðum og nemendur hafðir með í ráðum við val á námsefni og kennsluaðferðum.
  • Í félagsvísindum er markmið að auka þekkingu nemenda á samfélaginu og félagslegu umhverfi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindum. Einnig er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér gagnrýna hugsun í námi sínu.
  • Í sagnfræði er lögð áhersla á þessa þætti. Hugtökin frelsi, lýðræði og þjóðfrelsi eru rauður þráður auk umfjöllunar um þróun mannréttinda í heiminum.