Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Grunnmenntabraut (Staðfestingarnúmer 31) 15-31-2-3 framhaldsskólapróf hæfniþrep 2
Lýsing: Nemendur geta lokið framhaldsskólaprófi af grunnmenntabraut og skilar hún nemendum með hæfni á 2. þrepi. Grunnmenntabraut er 90 einingar og meðalnámstími er 3-4 annir. Grunnmenntabraut er byggð upp af kjarna og frjálsu vali. Kjarninn er 54 einingar og frjálsa valið 36 einingar. Nemendur velja sér þá áfanga sem þeir vilja leggja áherslu á í frekara námi eða hafa þörf fyrir vegna atvinnu. Hyggi nemendur á áframhaldandi nám verða þeir að gæta að hlutfalli milli hæfniþrepa. Nemendur skipuleggja nám sitt á grunnmenntabraut í samráði við námsráðgjafa.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla.
Skipulag: Nemendur geta lokið framhaldsskólaprófi af grunnmenntabraut og skilar hún nemendum með hæfni á 2. þrepi. Grunnmenntabraut er 90 einingar og meðalnámstími er 3-4 annir. Grunnmenntabraut er byggð upp af kjarna og frjálsu vali. Kjarninn er 54 einingar og frjálsa valið 36 einingar. Nemendur velja sér þá áfanga sem þeir vilja leggja áherslu á í frekara námi eða hafa þörf fyrir vegna atvinnu. Hyggi nemendur á áframhaldandi nám verða þeir að gæta að hlutfalli milli hæfniþrepa. Nemendur skipuleggja nám sitt á grunnmenntabraut í samráði við námsráðgjafa. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Nauðsynlegt er að skipuleggja nám sitt vel og hvaða tíma ætlað er í námið. Hver námseining er skipulögð af kennara þannig að hann gerir ráð fyrir að nemandinn þurfi 3 daga miðað við 6-8 klukkustunda vinnu til að ljúka henni. Fimm eininga áfangi er því miðaður við að nemandinn skili 15 daga vinnu. Henni er síðan dreift yfir önnina. Vinna þarf jafnt og þétt allar vikur til að ná árangri. Nemandi og forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá upplýsingar um námsframvindu nemenda í Innu á meðan á námsönn stendur, stutta umsögn á 2-3 vikna fresti.
Námsmat Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Nemandi í fullu námi skal ljúka að lágmarki 15 einingum á önn. Skólameistari getur heimilað undantekningu frá þessari reglu vegna skilgreindra námsörðugleika, veikinda og annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Sjá nánari útfærslu í skólareglum.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • beita góðri almennri þekkingu í þeim fögum sem þeir hafa lagt stund á
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu sem tengjast skilgreindu sérsviði
  • vera meðvitaðir um umhverfi sitt, njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • nýta þá kunnáttu sem þeir hafa öðlast sér til áframhaldandi náms eða starfs sem tengist sérkunnáttu þeirra
  • stunda frekara nám

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

90  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Grunnmenntabraut kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Frjálst val á grunnmenntabraut er 36 einingar. Einingar á 2. hæfniþrepi þurfa að vera a.m.k. 45 og mega ekki vera fleiri en 68. Nemendur þurfa að gæta að hlutföllum eininga milli hæfniþrepa hyggi þeir á áframhaldandi nám.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • með því að þjálfa nemendur í því að nýta sér margvíslega tækni í þekkingarleit
  • með því að þjálfa nemendur í að afla sér gagna, flokka og nýta sér upplýsingar á gagnrýninn hátt
  • með því að nemendur vinni með talnagögn bæði í raungreinum og félagsgreinum
Námshæfni:
  • með því að leggja áherslu á að efla sjálfstæð og öguð vinnubrögð nemenda
  • með því að kenna nemendum að meta vinnu sína og setja sér raunhæf markmið
  • með því að nemendur geri áætlanir um uppbyggingu náms síns og áætluð námslok
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • með því að í kjarna allra brauta er listaáfangi
  • með því að leggja áherslu á skapandi verkefnavinnu nemenda
  • með því að gefa nemendum tækifæri til að velja sér fjölbreytta valáfanga
Menntun til sjálfbærni:
  • með því að gera nemendur meðvitaða um umhverfi sitt, kenna þeim að njóta þess og virða og nýta á skynsamlegan hátt
  • með þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum
  • með því að vekja athygli nemenda á samfélagi sínu og möguleikunum sem þar felast
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • með því að þjálfa nemendur í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir bæði munnlega og skriflega
  • með umfjöllun um mismunandi samfélög og menningarhópa
Heilbrigði:
  • með því að skólinn er heilsueflandi framhaldsskóli
  • með því að styðja nemendur til að stunda hreyfingu með fjölbreyttu úrvali af íþróttaáföngum
  • með því að fylgja settri forvarnarstefnu og hvetja nemendur til að taka heilbrigðar ákvarðanir í lífinu
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • með því að þjálfa nemendur í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir bæði munnlega og skriflega
  • með því að efla tengsl náms við samfélagið og efla menningarlæsi nemenda
Lýðræði og mannréttindi:
  • með aðkomu nemenda að ákvörðunum varðandi skólastarfið
  • með því að þjálfa nemendur í lýðræðislegu gildismati
  • með því að hvetja nemendur til að hafa skoðanir á skólanum og náminu og taka tillit til þeirra við ákvarðanatöku
Jafnrétti:
  • með því að bjóða nemendum upp á nám við hæfi hvers og eins
  • með því að hvetja nemendur til að fagna fjölbreytileikanum í þjóðfélaginu
  • með því að bjóða upp á áfanga þar sem fatlaðir og ófatlaðir nemendur vinna saman