- Myndlæsi er lykilatriði í náminu en handverk og textíltækni á grundvelli fagurfræði hönnunar og lista er meginþáttur í öllum verklegum áföngum á textílbraut. Myndlæsi og samtal við sögu textíls, hönnunar og lista í fortíð og í samtímanum er einnig ríkur þáttur í þeim bóklegu áföngum sem kenndir eru við deildina.
- Í verklegri og tæknilegri vinnu nemenda á textílbraut eru hlutföll, stærðir og form grundvallaratriði og einnig við skoðun og ígrundun þeirra á verkum annarra. Nemendur vinna með margskonar tölulegar upplýsingar í tengslum við uppsetningu á vef, lykkjufjölda í prjóni og mynsturgerð fyrir þrykk. Ennfremur vinna nemendur með hlutföll í tengslum við litun á textíl.
- Í áfanga um fjármál vinna nemendur viðskiptaáætlun sem gerir þeim kleift að reikna út kostnað við rekstur verkstæða og skipulagningu verkefna og verðleggja eigin verk í viðskiptaumhverfi samtímans.
- Í listasögu, hönnunarsögu, fagsögu og málstofuáföngum öðlast nemandinn þjálfun í greiningu og myndlæsi. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á list, hönnun og handverk í þjóðfélagslegu samhengi, s.s. við stjórnmál, efnahag og hefðir.
- Nemendur kynna verk sín fyrir samnemendum og kennurum í lok hvers áfanga og fá þannig reglulega þjálfun í tjáningu.
|
- Nám á textílbraut er góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám textíl, fatahönnun eða myndlist. Námið er metið til háskólaeininga og geta nemendur sótt um að ljúka háskólagráðu við innlenda eða erlenda háskóla en það er undir viðkomandi háskóla hvort námið er metið til fulls eða að hluta til.
- Í skólanum er markvisst unnið að því að efla sjálfstæði nemenda í vinnubrögðum. Áföngum lýkur ávallt með yfirferð þar sem nemendur gera grein fyrir hugmynd og vinnuferli. Þátttaka í umræðum um verk samnemenda er mjög mikilvæg. Þannig læra nemendur að meta eigin vinnubrögð og annarra með sjálfsmati og jafningjamati og að gagnrýna á ábyrgan hátt. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og reyna á ýmsa hæfni. Jöfnum höndum er unnið að því að kynna nýja þekkingu fyrir nemendum og að gefa þeim kost á að vinna með efni og hugmyndir sem þeir þekkja vel. Eftir því sem lengra líður á námið eru gerðar meiri kröfur um sjálfstæði í vinnubrögðum og að nemendur nýti þekkingu sína og fyrri námsreynslu við lausn nýrra viðfangsefna.
- Í öllum áföngum þurfa nemendur að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og takast á við ýmsar áskoranir. Nemendur þurfa stöðugt að meta eigið vinnuframlag og læra þannig að þekkja styrk sinn og veikleika og að setja sér raunhæf markmið. Í listrænni vinnu er sjaldnast eitt rétt svar. Því er viðmið hvers nemanda hans eigin verk og markmiðið að bæta eigin frammistöðu í stað þess að miða sig við félagana.
- Í listasögu, hönnunarsögu, fagsögu og málstofuáföngum er rík áhersla lögð á að nemendur fái þjálfun í að skrifa og byggja upp læsilegan texta, meta gildi og áreiðanleika heimilda og tengja tilvitnanir eigin umfjöllun og leggja út af þeim.
- Í verkstæðisáföngum velja nemendur sér viðfangsefni og skipuleggja í samráði við leiðbeinanda. Niðurstaða áfanganna er gjarnan sett fram á opinberri sýningu á vegum skólans. Það leggur mikla ábyrgð á herðar nemenda sem þurfa að sýna sjálfstæð og skapandi vinnubrögð og setja fram raunhæfa tímaáætlun. Uppsetning sýningarinnar og utanumhald er sömuleiðis ábyrgðarstarf en á sýningunni koma nemendur fram sem fulltrúar skólans út á við. Nemendur þurfa að geta lagt mat á eigið vinnuframlag og þróað verkefni sín samkvæmt endurgjöf leiðbeinanda.
|
- í öllum námsgreinum á textílbraut reynir á frumkvæði og skapandi hugsun nemandans en sköpun er rauði þráðurinn í öllum áföngum. Nemendur þurfa í öllum áföngum að nýta sköpunargáfu sína í fjölbreyttri verkefnavinnu og kynningu á niðurstöðum sínum.
- Nemendur tileinka sér aðferðir við að halda utan um og hafa yfirsýn yfir gögn um eigin verk. Nemendur fá leiðsögn í möppugerð með því að taka og vinna myndir af verkum sínum. Ennfremur fá nemendur leiðbeiningar í tengslum við hönnun möppu, uppsetningu á ferilskrá og ritun yfirlýsingar um hugmyndafræðina á bak við verk sín. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og að nemandinn leggi mat á eigin vinnu og velji lykilverk til að koma á framfæri í möppu.
- Í upphafi verklegra áfanga vinna nemendur að nokkuð skýrt tilgreindum verkefnum sem er ætlað að dýpka skilning þeirra á viðfangsefninu og þjálfa mismunandi tækni í textíl. Eftir því sem leikni nemenda eykst reynir meira á hugmyndaauðgi og frumkvæði.
|
- Áhersla er lögð á jafnrétti í öllu starfi skólans og jafnrétti endurspeglast í starfsháttum skólans, samskiptum og skólabrag.
- Jafnréttisstefna sem birt er á vef skólans hljóðar svo: Skólinn hefur jafnrétti í heiðri og brýnir fyrir nemendum og starfsfólki að jafnrétti skuli ríkja, hvort sem er jafnrétti kynja, jafnrétti einstaklinga eftir trú, kynhneigð, stétt, aldri, kynþætti og litarhætti eða jafnrétti fatlaðra og ófatlaðra. Umburðarlyndi og víðsýni eru gildi skólans og grannt er fylgst með því að nemendur og starfsmenn virði þau.
- Nemendur í hinum ýmsu deildum skólans eru á öllum aldri, fullorðnir og börn, með ólíkan bakgrunn og af ýmsu þjóðerni, ófatlaðir, líkamlega fatlaðir og fólk með þroskahömlun. Stuðlað er að opnum samskiptum innan skólans til að auka víðsýni og umburðarlyndi, m.a. með heimsóknum milli deilda og sameiginlegum sýningum ólíkra hópa.
- Í verklegu námi er gætt að samþættingu kynjasjónarmiða í kennslu og stuðlað að sjálfsvirðingu og sjálfstæði beggja kynja. Áhersla er lögð á fjölbreyttar kennsluaðferðir og kennsluefni til að mæta ólíkum þörfum og áhuga nemenda og þess er gætt að vitna í heimildir sérfræðinga af báðum kynjum eftir því sem tök eru á.
- Í lista, fag og hönnunarsögu er þess gætt að nemendur kynnist verkum listamanna og hönnuða af báðum kynjum og ólíkum kynþáttum. Nemendur skoða list og hönnun frá öllum heimshlutum.
- Í námi á textílbraut er lögð áhersla á að nemendur kynnist hinum fjölbreyttustu sjónarmiðum lista- og fræðimanna og hönnuða og fái innsýn í mismunandi samfélög.
|
- Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði gagnvart samfélaginu og umhverfi sínu. Skólinn er þátttakandi í grænfánaverkefni Landverndar. Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Allt sorp er flokkað og nemendur eru eindregið hvattir til að nýta allt efni sem best.
- Í verkstæðisáföngum er sérstök áhersla lögð á að kynna fyrir nemendum hvernig lágmarka má umhverfisáhrif af þeim efnum sem unnið er með, ýmist með endurnýtingu eða frágangi á sorpi.
- Virðing fyrir samnemendum, kennurum og öðrum er mikilvægur þáttur í daglegu skólastarfi. Þegar fjallað er á gagnrýninn hátt um verkefni nemenda er lögð rík áhersla á að þeir átti sig á muninum á smekksdómum og gagnrýni sem studd er faglegum rökum.
|
- Nám á textílbraut krefst þess að nemendur séu hæfir til að afla sér upplýsinga á erlendum tungumálum og geti metið texta og verk erlendra höfunda á gagnrýnin hátt.
- Nemendur eru hvattir til að rita ferilskrá og kynningarmöppu á ensku til að auka möguleika þeirra á þátttöku í faginu á erlendri grund.
- Stjórnendur skólans eru vakandi fyrir möguleikum á ýmis konar samstarfi, bæði innanlands og utan en skólinn leitast markvisst við að taka þátt í fjölbreyttum alþjóðlegum samskiptum, s.s. námsferðum til útlanda og kennara- og nemendaskiptum til þess að auka víðsýni nemenda, efla skilning þeirra á mikilvægi tungumálakunnáttu og veita þeim innsýn í líf og störf fólks erlendis.
|
- Í skólastarfinu er lögð áhersla á heilsusamlegan lífsstíl m.a. í tengslum við næringu, og hreyfingu. Gengið er út frá því að nemendur beri ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum.
- Nemendur hafa aðgang að eldhúsi og matsal í skólanum. Þar geta þeir geymt nesti sitt í kæliskáp og þar eru tæki til að hita upp mat, rista brauð og annað.
|
- Í öllum áföngum vinna nemendur verkefni sem reyna á samskiptahæfni og tjáningu bæði í rituðu og töluðu máli. Nemendur þurfa að geta svarað spurningum á málefnalegan hátt og rökstutt skoðanir sínar og niðurstöður. Viðfangsefni nemenda eru oftar en ekki mjög huglæg og því er mikilvæg áskorun fólgin í að skerpa hugsunina og setja hana fram á skýran og skilmerkilegan hátt.
- Í listasögu, hönnunarsögu, fagsögu, heimspeki og málstofuáföngum þurfa nemendur að gera grein fyrir þekkingu sinni og skoðunum og taka þátt í samræðum. Ennfremur vinna nemendur með ritað mál. Með aukinni þjálfun verður mál þeirra blæbrigðaríkara, orðaforði fjölbreyttari og málskilningur dýpri. Það eykur möguleika þeirra á að koma verkum sínum á framfæri.
|
- Allt nám við skólann miðar að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í lýðræðissamfélagi með því að hvetja þau til að mynda sér skoðun og deila henni í umræðum.
- Leitað er eftir viðhorfum nemenda til ákveðinna þátta í þeim tilgangi að bæta skólastarfið. Í lok hvers námskeiðs er nemendum boðið að fylla út kennslumatskönnun þar sem þeir fá tækifæri til að láta í ljós álit sitt á skipulagi og innihaldi áfanga, námsefni og kennsluháttum. Niðurstöðurnar eru notaðar til þess að bæta það sem betur má fara.
- Nemendur eru hvattir til að sýna umburðarlyndi og virðingu fyrir mismunandi lífsgildum.
|