Mat á skólastarfi er liður í lögbundnu eftirlitsstarfi skóla og skólayfirvalda sem hefur þann tilgang að tryggja réttindi nemenda og stuðla að skólaumbótum. Markmið mats og eftirlits er einkum þríþætt. Í fyrsta lagi að fylgjast með að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskráa. Í öðru lagi að auka gæði skólastarfsins og stuðla að umbótum, tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Í þriðja lagi að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.Skólarnir bera sjálfir ábyrgð á innra mati sínu en ráðuneytið og eftir atvikum sveitarfélög annast ytra mat á skólum. Ytra mat felst m.a. í úttektum á skólastarfi í heild eða einstökum þáttum þess, stofnanaúttektum, úttektum á námsgreinum og námsþáttum og eftirliti með innra mati skóla. Ráðuneytið ber jafnframt ábyrgð á því að fylgjast með því að sveitarfélög uppfylli lögbundnar skyldur sínar gagnvart skólum þar sem við á. Þá ber ráðuneytinu að fylgjast með stöðu og þróun menntakerfisins. Í þeim tilgangi safnar ráðuneytið margvíslegum upplýsingum um skólahald, m.a. með þátttöku í alþjóðlegum könnunum á námsárangri og öðrum þáttum skólastarfs.Ráðuneytið gerir áætlun um úttektir á öllum skólastigum og birtir þær á vef sínum. Einnig gefur ráðuneytið út ítarlegar leiðbeiningar um innra mat sem skólar geta nýtt sér kjósi þeir það.Aðalnámskrá myndar grunn viðmiða sem mat á skólastarfi hvílir á en í skólanámskrá útfærir skólinn nánar þau markmið og viðmið sem sett eru fram í aðalnámskrá og eftir atvikum í skólanámskrám. Mikilvægt er að innra og ytra mat á skólum nái til allra lögbundinna markmiða skólastarfisins, þ.m.t. hlutverks skóla að styrkja nemendur til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi, efla frumkvæði og sjálfstæða hugsun nemenda, samskiptahæfni og fleiri atriði sem m.a. tengjast grunnþáttum menntunar.
Comments:
|