Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1338373940

    Enska 2
    ENSK2BB05
    58
    enska
    akademískur orðaforði, annar áfangi í ensku., fjölbreyttir textar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áhersla er lögð á að nemendur verði enn betur læsir á fræðilega texta. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða akademískra texta, tjá hugsun sína skýrt í riti og rökstyðja skoðanir sínar. Í fyrirrúmi er vandlegur lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Lesið er bókmenntaverk úr hinum enskumælandi menningarheimi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum.
    ENSK2AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • akademískum orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
    • rithefðum sem við eiga í ritgerðasmíð, svo sem inngangi með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
    • heildarmerkingu almenns ritaðs og talaðs máls
    • því menningarumhverfi sem textar eru sprottnir úr
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með orðabækur og þær upplýsingar sem þar er að finna
    • lesa fjölbreytta texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
    • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
    • geta hlustað á og skilið almennt talað mál
    • tjá sig munnlega og skriflega án teljanlegra málhnökra
    • skrifa vel uppbyggðar ritgerðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, léttar fræðigreinar og annað krefjandi efni
    • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara gagnrökum á viðeigandi hátt
    • skrifa formlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í ritgerðasmíð
    • nýta nýjan orðaforða
    Verkefni, smápróf, ritun, ástundun og lokapróf.