Áhersla er áfram lögð á að efla nákvæman skilning. Nemendur vinna með og þjálfa krefjandi orðaforða sem hjálpar þeim að skilja flókna og fjölbreytta texta. Nemendur vinna einnig með bókmenntaverk sem dýpka enn skilning þeirra á orðgnótt enskrar tungu og menningu enskumælandi þjóða. Ritun nemenda endurspeglar þessar áherslur og sýnir að þeir hafa náð valdi á grunnfærniþáttum tungumálsins.
Einkunn 8-10 í ENSK2BB05 eða ENSK2BH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
víðtækum nýjum orðaforða
bókmenntalegri umfjöllun
því menningarumhverfi sem textar eru sprottnir úr
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hlusta á enska tungu í öllu samhengi
tala um viðfangsefni áfangans með orðaforða við hæfi
lesa bókmenntatexta sem og krefjandi, fjölbreytta styttri texta
skrifa enn formlegri og fjölbreyttari ensku en áður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fréttaflutning, fyrirlestra, bókmenntaverk og annað krefjandi efni
beita ýmsu málsniði lipurlega bæði í töluðu og rituðu máli
nýta nýjan orðaforða
taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
lesa á gagnrýninn hátt, mynda sér eigin skoðanir og tjá þær