Mannkynssaga frá steinöld fram til loka fornaldar um 500 e.Kr.. Saga Miðausturlanda, Grikklands og Rómaveldis. Framhaldsáfangi í sögu og undanfari fyrir sögu á 3. þrepi. Viðfangsefni áfangans er klassísk fornaldarsaga sem jafnan er talin vera undirstaða vestrænna nútímasamfélaga, nefnilega Miðausturlanda, Grikklands og Rómaveldis og nálægra samfélaga. Sú saga og tengsl hennar við samfélag nútímans eru skoðuð rækilega og jafnframt er skoðað hvernig birtingarmyndir fornaldar hafa breyst í gegnum tíðina, velta fyrir sér hvernig sagan hefur verið túlkuð og íhuga hvaða tilgangi þær túlkanir þjóna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum kynhlutverka og stéttskiptingar á líf fólks í fornöld
helstu atburðum úr fornaldarsögu sem vísað er til í samtímanum
helstu hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum fornaldarsögu
hlutverki og mikilvægi trúarbragða í fornöld
meginstiklum í tækni-, vísinda- og atvinnuþróun fornaldar
mikilvægi fornaldarsögu fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun
mismunandi sjónarhornum á samfélagsleg gildi og siðferði í fornöld
mismunandi stjórnkerfum fornaldar, kostum þeirra og göllum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flytja framsögu um afmarkað sögulegt efni
greina söguleg viðfangsefni á gagnrýnirannsaka afmarkað sögulegt efninn hátt
rannsaka afmarkað sögulegt efni
setja fram söguleg viðfangsefni á skýran, aðgengilegan og skapandi hátt
skrifa texta sem byggja á ítarlegri heimildaöflun og úrvinnslu gagna
taka þátt í umræðum og verja rökstudda afstöðu sína
vinna að verkefnum með samnemendum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
að meta áhrif fornaldarsamfélaga á sitt eigið samfélag og sína eigin sjálfsmynd
að meta umfjöllun um fornöldina í nútímamiðlum
að taka frumkvæði í þekkingaröflun
að taka siðferðislega afstöðu til siða og atburða fornaldar
að taka þátt í málefnalegum umræðum og rökræðum um sögu og samfélög fornaldar
að útskýra viðhorf fornaldarfólks til ýmissa málefna
Tímaverkefni, fyrirlestur, stutt ritgerð, frjálst hópverkefni og val um lokapróf eða lokaverkefni