Almenn kynning á helstu viðfangsefnum sálfræðinnar
SÁLF2AK05
4
sálfræði
almenn kynning
Samþykkt af skóla
2
5
Kynning á ýmsum stefnum sálfræðinnar, þróun, sögu og rannsóknaraðferðum. Líffræðileg starfssemi heila og taugakerfis, helstu atriði námssálarfræðinnar auk kenninga og rannsóknarniðurstöður á svefni og draumum kynntar.
FÉLA1AK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skilja fjölbreytileika sálfræðinnar og hvernig sálfræði-menntun nýtist á vinnumarkaði
flokka helstu hugtök og stefnur innan sálfræðinnar
skilja mikilvægi rannsókna í sálfræði og hvernig þær skuli fara fram eftir stöðluðu formi
skilja uppbyggingu heila- og taugakerfisins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera grein fyrir hvernig hægt er að útskýra ýmsa hegðun í daglegu umhverfi út frá skilyrðingu
gera grein fyrir hvernig heili og taugakerfið getur haft áhrif á eigin líðan
gera grein fyrir kenningum og rannsóknum um svefn og drauma
tjá sig og skrifa á skýran hátt helstu hugtök innan sálfræðinnar
afla sér heimilda til rannsóknargerðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera saman hugtök og ólíkar stefnur innan sálfræðinnar ...sem er metið með... heimildarvinnu
nýta þekkingu sína um nám og minni við eigið nám ...sem er metið með... verkefnavinnu og rökræðum
gagnrýna stefnur og hugtök innan sálfræðinnar ...sem er metið með... heimildavinnu, rökræðum og kynningarvinnu
skipuleggja og framkvæma einfalda rannsókn í sálfræði ...sem er metið með... verkefnavinnu
gera grein fyrir niðurstöðu í einfaldri rannsókn og kynna hana ...sem er metið með... verkefnavinnu og kynningu