Viðfangsefni áfangans er það sérsvið sálfræðinnar sem kallast réttarsálfræði (forensic psychology). Réttarsálfræði er hagnýting sálfræðilegrar þekkingar í réttarfarslegum tilgangi, hvort sem hann varðar rannsóknir mála, yfirheyrslur, réttarhöld eða dóma. Áfanginn á að gefa yfirlit þessara þátta og er sérstaklega unnið með raunveruleg mál. Áhersla er lögð á að þjálfa nemendur í vinnslu gagna, að draga fram aðalatriði, greina dæmin og koma þeim skilningi á framfæri. Einnig er mikilvægt að nemandi geti ályktað um önnur sambærileg dæmi út frá því sem unnið er með í tímum, t.d. varðandi stöðu mála á Íslandi ef unnið er með erlend mál og öfugt. Nemendur vinna bæði með mál einstaklinga, para og sérstaklega hópa sem sýna sterka frávikshegðun sbr. „cult”.
SÁLF2IS05 eða sambærilegur áfangi í félagsvísindum á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðum réttarsálfræðinnar, bæði í afbrigðasálfræði, lögfræði og í afbrotafræði
sögu réttarsálfræðinnar
helstu kenningum fræðigreinarinnar
sérkennum réttarsálfræðinnar og þeim sérstöku aðferðum sem hún beitir
þeim grunnatriðum sem réttarsálfræðin fær frá öðrum greinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með helstu grunnhugtök réttarsálfræðinnar
þekkja helstu mál réttarsálfræðinnar
afla upplýsinga, greina þær og geta sett fram á skiljanlegu máli
meta nýjar upplýsingar og fréttir á sviði réttarsálfræðinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna úr einstökum dæmum og leggja sjálfstætt mat á þau
sýna sjálfstæði, t.d. frumkvæði við að velja sér verkefni og vinna að þeim á ábyrgan máta
álykta um gæði og galla þeirra heimilda sem unnið er með
leggja siðferðilegt mat á þau alvarlegu mál sem nemendur vinna með