Það kom upp villa
            
                senda inn
            
              Áfangi
        
    
    
 
    
        
            
Áfangi Nánari upplýsingar
            
        
     
    
    
    
    
    
    
    
    
            
                
                    
                    rúmfræði, þrívídd
                 
             
     
    
    
    
    
    
            
                
                    
                    
                            
                    
                 
             
     
    
    
            
                
                    
                    Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis og keilusnið 
                 
             
     
    
    
            
                
                    
                    
                        Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
                        
                        
                            - helstu hugtökum og viðfangsefnum í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
 
                        
                            - margflötungum
 
                        
                            - hornum og lengdum í þrívíðu rúmi
 
                        
                            - vigurreikningi í þrívíðu rúmi
 
                        
                            - keilusniði
 
                        
                        
                 
                 
             
     
    
            
                
                    
                    
                        Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
                        
                        
                            -  vinna með helstu hugtök og viðfangsefni í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
 
                        
                            -  finna allar stærðir horna og lengda í reglulegum margflötungum
 
                        
                            -  reikna stærðir horna og lengdir strika í þrívíðu rúmi
 
                        
                            -  reikna með  vigurreikningi í þrívíðu rúmi
 
                        
                            -  vinna með keilusnið og jöfnur  hrings, sporbaugs og breiðboga
 
                        
                            -  beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna
 
                        
                        
                     
                 
             
     
    
            
                
                    
                    
                        Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
                        
                        
                            -  geta skráð lausnir sínar skipulega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt 
 
                        
                            -  beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geti útskýrt aðferðir sínar 
 
                        
                            -  geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í rúmfræðinni 
 
                        
                            -  gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna 
 
                        
                            -  beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta 
 
                        
                            -  fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta 
 
                        
                            -  rekja sannanir í námsefninu 
 
                        
                            -  átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi 
 
                        
                        
                     
                 
             
     
    
            
                
                    
                    
                        
                            Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.