Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1328314424

    Menning og samfélag
    DANS2MS05
    1
    danska
    menning, samfélag
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist dýpri og sérhæfðari orðaforða en áður og geti nýtt sér hann í öllum færniþáttum. Þeir eiga að geta tjáð sig lipurt bæði munnlega og skriflega. Notaðir eru fjölbreyttir textar og kvikmyndir til þess að nemendur kynnist mismunandi hlutum dansks samfélags, menningu þess og venjum og þjálfi bæði skilning sinn á bæði töluðu og skrifuðu máli. Nemendur kynnast einnig öðrum norrænum tungumálum. Meginmarkmið áfangans er að þjálfa nemendur í að beita þeirri kunnáttu sem þeir áður hafa tileinkað sér til þess að kynna sér fjölbreytt efni tengd dönsku samfélagi og menningu með ýmsum aðferðum. Áhersla er á að kynna nemendum mismunandi rithöfunda og ritstíla. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur taki ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína og læri að nýta sér þau hjálpartæki sem í boði eru, td. orðabækur bæði á riti og neti.
    Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
    • skyldleika dönskunnar við íslensku og önnur norræn tungumál
    • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
    • notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
    • danska málkerfinu til markvissar notkunar, bæði skriflega og munnleg
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
    • skyldleika dönskunnar við íslensku og önnur norræn tungumál
    • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
    • notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
    • danska málkerfinu til markvissar notkunar, bæði skriflega og munnleg
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál svo sem samræður, kvikmyndir og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér ...sem er metið með... umræðum og ritunarverkefnum
    • tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt ...sem er metið með... lesskilnings og ritunarverkefnum
    • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um efni þeirra ...sem er metið með... umræðum, ritunarverkefnum og lesskilningsverkefnum
    • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta ...sem er metið með... lesskilnings og ritunarverkefnum
    • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum við ólíka viðmælendur ...sem er metið með... umræðum
    • skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og bregðast við viðmælendum. ...sem er metið með... umræðum
    • tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér ...sem er metið með... kynningum
    • skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín ...sem er metið með... ritunarverkefnum
    • skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni ...sem er metið með... ritunarverkefnum
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra ...sem er metið með... kynningum, jafningjamati og sjálfsmati
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum ...sem er metið með... umræðum og jafningjamati
    • meta eigið vinnuframlag ...sem er metið með... ritunarverkefnum og sjálfsmati
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.