Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Framhaldsáfangi í efnafræði
framhaldsáfangi í efnafræði
Fjallað um varmaefnafræði, skammtafræði og eiginleikar efna. Einnig er fjallað um efnatengi, innan og milli sameinda og byggingu sameinda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugmyndum um orku og lögmálinu um varðveislu orkunnar
- innri orku og hvarfvarma
- rafeindaskipan atóma og jóna
- jónunarorku, rafeindafíkn og hvernig eiginleikar frumefna eru háðir stöðu í lotukerfinu
- áttureglunni og hvernig tákna má sameindir í fleti og teikna Lewis myndir
- rafneikvæðni, tengjum innan sameinda og milli jóna annars vegar og sameinda hins vegar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna orkubreytingar í efnahvörfum með mismunandi aðferðum
- skrifa rafeindaskipan atóma og jóna
- greina milli jónatengja, skautaðra samgildra tengja og samgildra tengja
- teikna Lewis myndir og nota þær til að finna líklegustu samsetningu og uppbyggingu sameindar
- greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
- skrifa skýrslur um tilraunir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar ...sem er metið með... verkefnum og prófum
- túlka efnatákn og efnajöfnur ...sem er metið með... verkefnum og prófum
- nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni ...sem er metið með... verkefnum
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum ...sem er metið með... verkefnum
- setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt ...sem er metið með... verkefnum
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli ...sem er metið með... verkefnum og prófum
Skýrslur, verkefni og próf.