Í áfanganum verður listasaga Vesturlanda frá nýklassík til abstrakt expressjónisma kennd. Fjallað verður meðal annars um nýklassík, rómantík, raunsæisstefnuna, impressjónisma, expressjónisma, abstrakt list, dada, súrrealisma og abstrakt expressjónisma. Nemendur fá þjálfun í að fjalla um listasöguna og sögulega þróun með því að skrifa rannsóknarritgerð þar sem einn listamaður og sú stefna sem hann vann í er tekinn til umfjöllunar og niðurstöðurnar kynntar fyrir samnemendum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu stíleinkennum í myndlist frá nýklassík til abstrakt expressjónisma
nöfnum og verkum helstu myndlistarmanna á tímabilinu
hvernig myndlist einstakra myndlistarmanna breytist með tíma og breyttum viðhorfum
hvernig samfélagsgerð og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og útfærslu verka myndlistarmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
miðla sögulegri þekkingu
vinna með ritaðar heimildir á skipulagðan hátt
nota APA kerfið
greina sögulega þróun myndlistar og samhengi hennar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar ...sem er metið með... verkefnum og prófum
vinna sjáfstætt og setja fram sögulegar greiningar ...sem er metið með... verkefnum og prófum
vinna skipulega með sögulegan texta og setja fram á rökrænan hátt ...sem er metið með... verkefnum og prófum
meta gæði heimilda ...sem er metið með... heimildaritgerð
skrifa rannsóknarritgerð ...sem er metið með... ritgerð
Námsmat byggir á ritgerð, ástundun og þátttöku í umræðum og lokaprófi.