Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331576059

    Myndbönd
    FEMY3TV05
    1
    ferilmappa, myndbönd
    tölvuvinna
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum fá nemendur kennslu í hvernig hægt er að halda utan um vinnu sína á skipulegan hátt með stafrænum aðferðum, til dæmis með einfaldri vefsíðu og öðrum aðferðum. Hvernig setja má vinnuna upp í ferilmöppu til kynningar á sjálfum sér vegna umsókna í háskóla, þátttöku í samkeppnum, umsókna um sýningar o.s.frv. Heimasíður íslenskra listamanna verða skoðaðar, gagnrýndar og greindar. Í áfanganum læra nemendur helstu aðferðir við framleiðslu myndbanda. Í ferlinu er farið í markvissa hugmyndavinnu, myndbyggingu, myndatöku, klippingu, lokafrágang myndar og kynningu á henni. Lögð er áhersla á að kenna nemendum að vinna myndhandrit. Nemendur vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum á fjölbreyttan hátt. Í öllum verkefnum er lögð áhersla á góða samvinnu/hópavinnu. Nemendum verður kynnt starfsemi fyrirtækja sem vinna að kvikmyndagerð á fjölbreyttum grundvelli og eins fá nemendur kynningu á framhaldsnámi á sviði kvikmynda- og myndbandagerðar. Íslenskir listamenn sem vinna verk með þeirri tækni sem kennd er í áfanganum verða kynntir.
    MÁLV2GR05, SKÚL2GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umsóknarferli í háskóla
    • hvernig íslenskir myndlistarmenn kynna sig á heimasíðum sínum
    • helstu aðferðum við einfalda myndbandagerð
    • vinnu fagfólks í myndbandagerð
    • mikilvægi samvinnu við gerð myndbanda
    • menntastofnunum hér heima og erlendis á sviði kvikmyndagerðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja saman ferilmöppu þar sem hann kynnir sig og verk sín og dregur upp heiðarlega og sannfærandi mynd af sjálfum sér og list sinni
    • skrásetja verk sín stafrænt
    • leita sér upplýsinga um inntökuferli í íslenskum og erlendum háskólum
    • búa til margskonar myndbönd
    • vinna í hóp sem skiptir með sér verkum
    • ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann túlkar í myndböndum sínum
    • taka þátt í umræðu um hugmyndir og stuttmyndir samnemenda sinna á uppbyggilegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sækja um nám og störf sem tengjast námi hans á listnámsbraut ...sem er metið með... verkefnum
    • skapa myndbönd sem eru áhugaverð og persónuleg ...sem er metið með... verkefnum
    • fjalla um hugmyndalegan og verklegan bakgrunn verka sinna ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    • taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    Í áfanganum verða verkefni nemenda, verkleg og skrifleg, metin með tilliti til sjálfstæðis, tækni, fagurfræði, hugmyndaauðgi,vinnusemi og vinnubragða.