Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331979026

    Grunnáfangi
    LEIK1GR05
    2
    leiklist
    grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn skal veita grunnþekkingu á verkfærum leikarans til greiningar á leikritum, senum og persónusköpun. Áfanginn skal þjálfa nemendur í verklagi leikhússins, leikni í aga og í að beita sköpunargleðinni til jafns við formuppbyggingu sena og persóna.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að nýta sér jákvæðni í samvinnu við aðra
    • hinum gefnu forsendum í leiklist
    • verkfærum leikarans (rödd, líkama, tilfinningum og ímyndunarafli)
    • spuna annars vegar og forskrifaðri vinnu hins vegar
    • uppbyggingu sena aðstæðna og kringumstæðna
    • uppbyggingu leikrita
    • uppbyggingu persóna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta verkfæri leikarans; rödd, líkama og tilfinningar til að túlka persónur af breiðum meiði
    • skynja hvaða orkustigs vinnan krefst
    • nýta orku sína meðvitað til að skapa
    • vinna uppbyggilega með öðrum
    • beita virkri hlustun á sviði og utan þess
    • einbeita sér í hugmyndavinnu og allri vinnu sem fer fram á leiksviði
    • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og sjálfsaga í leiklistarvinnu
    • nýta rýmið á mismunandi hátt í leiksenum, aðstæðum og kringumstæðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina leikverk, spunasenur, forskrifaðar senur og persónur ...sem er metið með... gólfvinnu og umræðum
    • rökræða leikverk, senur og persónur í leikverkum ...sem er metið með... virkni og framlagi nemanda í umræðum
    • setja sig í spor persóna og nýta verkfæri leikarans (rödd, líkama, tilfinningar og ímyndunarafl) ...sem er metið með... gólfvinnu og umræðum
    • til að túlka tilfinningar og vilja á sviði ...sem er metið með... stöðumati
    • beita hlustun og orkustigi í samvinnu og sviðsvinnu ...sem er metið með... stöðumati
    • beita sjálfsaga og sjálfstæðum vinnubrögðum ...sem er metið með... dagbók,mætingu og virkni
    Nemendur skrifa vinnubók út frá þemu hvers tíma kennslunnar og skal vinnubókin endurspegla skilning nemenda á námsefninu. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni í hverjum tíma þar sem sjálfstæði vinnubragða, frumkvæði og samvinna eru metin í símati.