Áfanginn er ætlaður öllum nýnemum. Hann er kenndur á fyrstu önn. Umsjónarkennarar kenna áfangann, þeir munu svo fylgja nemendum út veru þeirra í skólanum. Hugmyndin á bak við það er að nemendur kynnist vel einhverjum kennara sem þeir geta svo leitað til. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast stuðningskerfinu í skólanum og því námi sem þar fer fram. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla svo sem ritvinnslu, notkun á bókasafni og námstækni. Farið verður í ýmsar forvarnir sem tengjast heilbrigðu lífi, sterkri sjálfsmynd og því að verða fullorðinn. Farið verður í nýnemaferð í upphafi annar til að hrista saman nemendur og kennara.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skólanum og umhverfi hans
því námi og þeim námsmöguleikum sem í boði eru
námstækni
því stuðningskerfi sem skólinn býður upp á
því félagslífi sem í boði er
grunnatriðum í notkun á word, excel og power point
mikilvægi heilbrigðs lífs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér það stuðningskerfi sem skólinn býður upp á
gera námsáætlun
beita námstækni
nýta sér það félagslíf sem í boði er
nota word, exel og power point
greina þætti sem leiða til heilbrigðs lífs
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera virkur einstaklingur í skólasamfélaginu sem tekur ábyrgð á eigin gjörðum