Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1335955127

    Grunnáfangi í listljósmyndun
    LJÓS2LM05
    1
    ljósmyndun
    listljósmyndun, listrænt landslag, myndavélin
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðist dýpri og sérhæfðari þekkingu á listljósmyndun og geti nýtt hana í öllum færniþáttum bæði tæknilega og listrænt við eigin listsköpun. Farið er í er fjölbreytt efni um listljósmyndun með lestri og myndböndum. Fjallað er um listljósmyndara innlenda sem erlenda og þeir greindir með tilliti til stefnu og strauma listgreinarinnar. Verk eru borin saman, flokkuð og rædd. Nemendur spreyta sig síðan á því að túlka í ljósmyndum og orðum eigin verk og annarra ásamt því að setja upp sýningu með eigin verkum. Áhersla er lögð á myndatöku úti af landslagi, fólki eða öðru í umhverfinu við náttúrulega lýsingu.
    Inngangur að listum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hægt er að beita myndavél til að skapa listljósmynd
    • myndbyggingu, gullinsniði, formi, áferð, línum og litum
    • fjölbreyttum orðaforða um listljósmyndum til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
    • mismunandi stefnum og straumum í listljósmyndun, geta borið saman verk og aðgreint þau
    • þeirri ábyrgð sem felst í að taka, birta og vinna listljósmyndir
    • geta miðlað skriflega og með listljósmyndum eigin hugmyndum
    • myndatöku við náttúrulega birtu af landslagi, byggingum, umhverfi eða fólki
    • þekktum listljósmyndum sem tengjast efni áfangans
    • vinnslu listljósmynda sem teknar eru við náttúrulega birtu
    • listljósmyndun til að undirbúa frekara nám.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt um listljósmyndun
    • skipuleggja vinnuferli við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu listljósmyndaseríu eftir eigin hugmynd
    • velja verkfæri og aðferðir við að skapa listljósmyndir með mismunandi tjáningarformum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í grunn vinnubrögðum listljósmyndunar
    • sjá myndefni í umhverfi sínu útivið
    • taka þátt í umræðum um listljósmyndir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá skoðanir sínar á listljósmyndum ...sem er metið með... samræðuverkefnum
    • skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi listljósmyndunar á ábyrgan, sjálfstæðan og skýran hátt ...sem er metið með... samræðuverkefnum
    • bera virðingu fyrir grundvallarreglum um meðferð listljósmynda og býr yfir ábyrgð gagnvart starfi listljósmyndarans og starfsumhverfis hans ...sem er metið með... samræðuverkefnum
    • skapa skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir nýjum tækifærum í listljósmyndun ...sem er metið með... ljósmyndum nemandans
    • geta metið eigin þekkingu og leikni ásamt því aða gera sér grein fyrir hvernig frekara nám eflir hæfni og eykur möguleika ...sem er metið með... samræðuverkefnum
    • þekkja sjálfan sig sem listamann ...sem er metið með... ljósmyndum nemandans vinna á skapandi hátt við listiðkun sína
    • sýna verk sín á listsýningu og hafa samskipti við gesti um verk sín ...sem er metið með... listsýningu
    • tengja þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi listljósmyndunar og daglegt líf ...sem er metið með... samræðuverkefnum
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.