Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðist dýpri og sérhæfðari þekkingu á listljósmyndun og geti nýtt hana í öllum færniþáttum bæði tæknilega og listrænt við eigin listsköpun. Farið er í er fjölbreytt efni um listljósmyndun með lestri og myndböndum. Fjallað er um listljósmyndara innlenda sem erlenda og þeir greindir með tilliti til stefnu og strauma listgreinarinnar. Verk eru borin saman, flokkuð og rædd. Nemendur spreyta sig síðan á því að túlka í ljósmyndum og orðum eigin verk og annarra ásamt því að setja upp sýningu með eigin verkum.
Áhersla er lögð á listrænar portettmyndatökur bæði í stúdíói og umhverfisportrett. Myndatökur af uppstilltum hlutum og listaverkum. Sérstök áhersla á beitingu lýsingar og hvernig ljósið málar viðfangsefnin.
Inngangur að listum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig hægt er að beita myndavél til að skapa listljósmynd
myndbyggingu, gullinsniði, formi, áferð, línum og litum
fjölbreyttum orðaforða um listljósmyndum til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
mismunandi stefnum og straumum í listljósmyndun, geta borið saman verk og aðgreint þau
þeirri ábyrgð sem felst í að taka, birta og vinna listljósmyndir
geta miðlað skriflega og með listljósmyndum eigin hugmyndum
myndatöku í með stúdíóljósum inni og úti með mismunandi búnaði
mismunandi viðbótarlýsingu
þekktum listljósmyndum sem tengjast efni áfangans
vinnslu listljósmynda af fólki og hlutum
stilla upp fyrir listræna ljósmyndatöku með stúdíóljósum
listljósmyndun til að undirbúa frekara nám.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka listrænar ljósmyndir með fjölbreyttum lýsingaraðferðum
tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt um listljósmyndun og listljósmyndir
skipuleggja vinnuferli við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu listljósmyndaseríu eftir eigin hugmynd
velja verkfæri og aðferðir við að skapa listljósmyndir með mismunandi tjáningarformum
sýna frumkvæði og sjálfstæði í grunn vinnubrögðum listljósmyndunar
taka þátt í umræðum um listljósmyndir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá skoðanir sínar á listljósmyndum ...sem er metið með... samræðuverkefnum
skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi listljósmyndunar á ábyrgan, sjálfstæðan og skýran hátt ...sem er metið með... samræðuverkefnum
bera virðingu fyrir grundvallarreglum um meðferð listljósmynda og býr yfir ábyrgð gagnvart starfi listljósmyndarans og starfsumhverfis hans ...sem er metið með... samræðuverkefnum
skapa skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir nýjum tækifærum í listljósmyndun ...sem er metið með... ljósmyndum nemandans
geta metið eigin þekkingu og leikni ásamt því aða gera sér grein fyrir hvernig frekara nám eflir hæfni og eykur möguleika ...sem er metið með... samræðuverkefnum
þekkja sjálfan sig sem listamann ...sem er metið með... ljósmyndum nemandans
vinna á skapandi hátt við listiðkun sína ...sem er metið með... ljósmyndum nemandans
sýna verk sín á listsýningu og hafa samskipti við gesti um verk sín ...sem er metið með... listsýningu
tengja þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi listljósmyndunar og daglegt líf ...sem er metið með... samræðuverkefnum
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.