Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á hugmynda- og tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla. Unnið verður með efni sem alla jafna er hent og gefa því nýtt líf þannig að nemendur kynnast því að í myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
Inngangur að listum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er
að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti úr úrgangi
konsept hugsun
vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
skapandi hugsun og hugflæði
hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
að miðla listsköpun sinni með því að tjá sig um hana og sýna
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
meta eigið vinnuframlag
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita skapandi hugsun
sjá möguleika í úrgangi sem öllu jafna er hent og gefa nýtt hlutverk
tjá sig um eigin sköpun
nýta sér hugarflæði í hugmyndavinnu
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera skapandi í hugsun ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
skapa list úr úrgangi ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
tjá sig hiklaust um eigin sköpun við aðra viðmælendur ...sem er metið með... umræðum
skapa eigin verk byggt á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
skilgreina eigin verk ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum ...sem er metið með... framkvæmd sýningar og umræðum
kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annarra ...sem er metið með... umræðum
tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur ...sem er metið með... umræðum
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum ...sem er metið með... umræðum, verklegum æfingum og skriflega
meta eigið vinnuframlag ...sem er metið með... umræðum og skriflega
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.