Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1336053403

    Hjarta og blóðrás
    ÍÞRF3HB05
    1
    íþróttafræði
    hjarta og blóðrás
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis, lungna og taugakerfis og gerð vöðvaþráða. Einnig er fjallað um þol, kraft, hraða, liðleika, tækniþjálfun og markmiðsáætlanir. Farið er í gerð þjálfunaráætlana til lengri og skemmri tíma. Í áfanganum er fjallað um helstu grunnþætti íþróttasálarfræðinnar. Skoðuð eru ýmis áreiti sem hafa áhrif á getu íþróttamanna. Fjallað er um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi.
    ÍÞRF2BV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma
    • skipulagi þjálfunar til lengri og skemmri tíma
    • mikilvægi góðrar þekkingar á tækni og leikfræði íþróttagreina
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • muninum á einstaklings- og hópíþróttum og áhrifum félagslegra þátta á íþróttamanninn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja grunnþjálfun hópa og einstaklinga
    • vinna að auknu sjálfstrausti og sjálfsmynd í því skyni að bæta árangur
    • framkvæma mælingar á þjálfunarástandi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • starfa með börnum og unglingum við íþróttaiðkun út frá líffræðilegum og sálfræðilegum forsendum
    Verkefnavinna og lokapróf.