ENSK3BR05 samsvarar hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Lesnir eru klassískir enskir textar sem gera nemendum kleift að þróa djúpstæðari þekkingu á ensku samfélagi og þeim tímum sem verkin eru skrifuð.
Áhersla verður lögð á að vinna úr textanum með því að beita bókmenntahugtökum.
Nemendur þjálfa ritun enn frekar með því að tjá sig með ýmsum ritunaraðferðum svo sem samantekt, skapandi skrifum, ritgerðarsmíði og þýðingum.
ENSK2OB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu lestraraðferðum
aðferðum í að lesa og skilja texta sem skrifaðir eru á mismunandi tímabilum
flóknari söguþráðum og innhaldi rannsóknarefnis
fjölbreyttum stílum (writing styles)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér orðaforða tengdan ákveðnu sögutímabili
tileinka sér jákvætt og gagnrýnið læsi til að geta deilt skoðunum á lesnu efni
vinna eftir skipulögðu ferli við ritsmíðar
taka þátt í umræðum um bókmenntir/fræðitexta og tjá sig á viðeigandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja flóknari bókmenntir/fræðitexta
gagnrýna og skilgreina bókmenntaverk í rituðu og töluðu máli
þróa með sér noktun á flóknari orðaforða
skrifa lipra texta
kafa undir yfirborð verksins og túlka dýpri merkingu bókmenntatexta í ræðu og riti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.