Efnafræði: efnatengi, hraðafræði og efnafræði lofttegunda
EFNA3HE05
12
efnafræði
efnaftengi, hraðafræði og efnafræði lofttegunda
Samþykkt af skóla
3
5
Í þessum framhaldsáfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byggt er ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: skematísk framsetning efnatengja og Lewis myndir, hraði efnahvarfa og hraðalögmálið, tengi innan og á milli sameinda, flokkar lífrænna efna og IUPAC nafnakerfið, og efnafræði lofttegunda.
EFNA2EM5 Efnahvörf, mólstyrkur og orka
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skematískri framsetningu tengja, áttureglunni og hvernig tákna má sameindir í fleti og teikna Lewis myndir
hraðafræði efnahvarfa og hvarfhraða
tengjum innan sameinda og milli sameinda
flokkun lífrænna efna og IUPAC nafnakerfinu
grunnatriðum efnafræði lofttegunda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna Lewis myndir og nota þær til að finna líklegustu samsetningu sameindar
greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
finna hraðalögmál út frá tilraunaniðurstöðu og nota jöfnu Arrheniusar
greina flokka lífrænna efna og gefa efnunum nöfn samkvæmt IUPAC nafnakerfinu
nota gaslíkinguna og reikna hlutþrýsting
skrifa skýrslur um tilraunir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
túlka efnatákn og efnajöfnur
nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt
tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.