Undirbúningur fyrir fyrsta áfanga í stærðfræði. Undirstöðu reikniaðgerðir, almenn brot, bókstafareikningur, jöfnur og veldi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðu reikniaðgerðum
reglum um forgangsröðun aðgerða
reikningi með almennum brotum
bókstafareikningi
einföldum jöfnum og veldareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með undirstöðu reikniaðgerðir við lausn verkefna
beita forgangsröðun aðgerða í einföldum dæmum
þekkja algeng stærðfræðitákn og túlka þau í mæltu máli
vinna með almenn brot, jöfnur og veldi
vinna með óþekktar stærðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna skipulega að lausnum á dæmum
vinna sjálfstætt með aðferðir í stærðfræði
skiptast á skoðunum við aðra um aðferðir til að leysa fjölbreytt dæmi
leysa jöfnur með óþekktri stærð
Átta heimaverkefni sem gilda samtals 50% - Nemendur þurfa að skila öllum heimaverkefnum og ná 4.5 í meðaleinkunn til að standast áfangann.
Fimm kaflapróf sem gilda alls 50% - Nemendur þurfa að taka öll próf og ná 4.5 í meðaleinkunn til að standast áfangann.